Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 587/1993"
2 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli B ehf. gegn íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með aðalkröfu B ehf. í málinu hefði verið farið fram á að dómstólar skýrðu nánar tiltekin stjórnvaldsfyrirmæli án þess að það tengdist úrlausn um ákveðið sakarefni en slíkt bryti í bága við 1. mgr. 25. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Þá var talið að samkvæmt 1. mgr. 24. gr. sömu laga brysti dómstóla vald til að leggja dóm á þær kröfur B ehf. sem lutu að því að viðurkennt yrði að félaginu væri heimilt að flytja inn nánar tilteknar vörur, þrátt fyrir bann stjórnvaldsfyrirmæla. Loks var talið að B ehf. hefði hvorki gert grein fyrir því í hverju tjón félagsins fælist né hver tengsl þess tjóns væru við hið ætlaða skaðaverk. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
...Samkvæmt fyrrgreindri reglugerð nr. 587/1993 væri íblöndun þess efnis í önnur matvæli en drykkjarvörur óheimil. Stofnunin hafi því ákveðið á grundvelli 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli...
Fallist var á frávísunarkröfu stefnda með vísan til þess að kröfugerð stefnanda samrýmdist ekki ákvæðum 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991.
...stangist á við bann við íblöndun koffíns í önnur matvæli en drykkjarvörur samkvæmt reglugerð nr. 587/1993. Þá kemur fram í bréfinu að umrædd vara innihaldi einnig tiltekið litarefni sem...