Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 522/1994"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 21. mars 2002

384/2001

Hildur Guðjónsdóttir og Ýmir Vésteinsson (Jón Magnússon hrl) gegn Reykjagarði hf (Gestur Jónsson hrl)

H og Ý keyptu ófryst kjúklingalæri frá R í apríl 1999 og óku í sumarbústað við Flúðir, þar sem lærin voru elduð fyrir samkvæmi sem þar var. Lærin voru matreidd á grilli og neyttu H og Y þeirra ein. Umbúðir kjötsins voru merktar á þann hátt að þeim sem matreiddu það bæri annaðhvort að gegnumsteikja það eða sjóða. Nokkrum dögum síðar veiktust þau H og Ý og í ljós kom að þau höfðu smitast af kampýlóbakter sýkli. Höfðuðu þau mál gegn R til greiðslu skaðabóta og héldu því fram að R hafi verið kunnugt um sýkinguna og því hafi merkingin á vörunni verið ófullnægjandi. Talið var að H og Ý bæru sönnunarbyrði um ágalla vörunnar og um orsakatengsl milli ágalla og tjóns, sbr. lög um skaðsemisábyrgð. Í málinu lá fyrir rannsókn frá ágúst 1999 þar sem fram kom að þá var kampýlóbaktermengun óvenjumikil hjá framleiðendum kjúklinga og jafnframt lá fyrir að R hafi átt við þetta vandamál að stríða í framleiðslu sinni í verulegum mæli. Heilbrigðisyfirvöld höfðu einnig látið málið til sín taka þá um haustið og hvatt til þess að almenningur yrði upplýstur um smithættu matvæla og hvernig koma mætti í veg fyrir smit. Ekkert lá fyrir í málinu um umfang kampýlóbaktersýkingar í apríl 1999 eða aðvaranir heilbrgiðisyfirvalda þar að lútandi. Þá höfðu H og Ý ekki skorað á R að leggja fram upplýsingar, sem varpað gætu ljósi á hvaða vitneskju hann hafi þá búið yfir um mengunina. Ágreiningslaust var talið, að væri umræddum leiðbeiningum fylgt kæmi sýking kjúklinga af kampýlóbakter ekki að sök, þar sem bakterían hefði lítið hitaþol. Eins og málið var lagt fyrir dóminn þótti ekki nægjanlega í ljós leitt af hálfu H og Ý að R hefði mátt vita að svo mikill hluti kjúklingaframleiðslu hans væri sýktur í apríl 1999 að honum hafi borið að vara neytendur sérstaklega við og skora á þá að fylgja leiðbeiningunum fast eftir. Var því ekki talið að H og Ý hafi tekist að sanna að varan hafi verið haldin ágalla í merkingu laga um skaðsemisábyrgð. Var R því sýknaður.

...93/1995 um matvæli og reglugerð nr. 522/1994 um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla, einkum 4. gr. og 6. gr. og viðauka sömu reglugerðar nr. 1...