Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 501/1997"
2 dómar fundust
Aðalstefndu sýknaðir af kröfum stefnanda um viðurkenningu á fullri bótaskyldu vegna árekstur og umferðarslyss vegna eigin sakar stefnda. Á hinn bóginn var viðurkennd full bótaskylda af hálfu varastefnda vegna slysatryggingar ökumanns, enda ekki talið sannað að stefnandi hafi firrt sig bótarétti með stórkostlegu gáleysi.
...afdrifaríka dag. Sé það einnig ólögmætt að stjórna umræddu ökutæki án réttinda, sbr. reglugerð nr. 501, 1997. Bendir stefndi á að tilgangur löggjafans með kröfum um réttindi til aksturs vélknúinna...
S var gefið að sök að hafa í júlí 2000 ekið hópbifreið, sem var 2,49 m breið, með 30 farþega innanborðs, of hratt miðað við aðstæður og án nægjanlegrar aðgæslu, inn á einbreiða brú, sem er 2,60 m á breidd, yfir ána Hólsselskíl á Hólsfjöllum með þeim afleiðingum að bifreiðin fór út af brúnni og valt ofan í ána. Við þetta köstuðust farþegarnir til inni í bifreiðinni og urðu 11 þeirra fyrir líkamstjóni og einn lést af völdum áverka. Talið var að S hefði verið á um 43-54 km hraða þegar hann fór inn á brúna. Veður var gott og sást brúin og allar aðstæður langt að. Litið var til þess að vegurinn að brúnni var nýheflaður og laus í sér og hefði því þurft að gæta sérstakrar varúðar vegna þess. Þá kom fram í málinu að S hafði ekki mikla reynslu í akstri hópferðabifreiða þegar slysið varð og þekkti ekki veginn eða umrædda brú. Var litið svo á að þetta hefði kallað á aukna aðgæslu af hans hálfu. Í ljós var leitt að bifreiðin kom skökk inn á brúna og að hægri afturhjólbarðinn lenti á brúarstólpa þannig að hún kastaðist til og valt út af brúnni. Ljóst þótti að S hefði ekki haft fullt vald á bifreiðinni er hann kom að brúnni, og þótti sannað að hann hefði ekið of hratt og ógætilega miðað við aðstæður svo varðaði við umferðarlög. Þar sem mannsbani og líkamstjón hlaust af akstri ákærða var hann einnig talinn hafa unnið til refsingar samkvæmt 215. og 219. gr. almennra hegningarlaga. Var S dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til sviptingar almenns ökuréttar í 6 mánuði. Áður hafði Sýslumaðurinn á Akranesi afturkallað aukin ökuréttindi S.
...viðauka við reglugerð nr. 501/1997. V. Hraði bifreiðarinnar M-2700. Upplýsingaskýrsla Vegagerðarinnar Að beiðni lögreglu rannsökuðu tveir starfsmenn þjónustudeildar Vegargerðarinnar, Sævar Ingi Jónsson og Sigurður Hauksson, skráningarblöð (skífur) úr...