Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 495/2001"

4 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. október 2010

S-461/2010

Ákæruvaldið (Þorsteinn Skúlason fulltrúi) gegn Maríu Kristu Hreiðarsdóttur og Berki Jónssyni (Bjarni S. Ásgeirsson hrl)
Lykilorð: Sektir.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu voru sakfelld fyrir brot á iðnaðarlögum.

...Nánar tiltekið hafi með reglugerð nr. 495/2001, um viðurkenningu á starfi og starfsþjálfun í iðnaði í öðru EES-ríki, verið felldar úr gildi hér á landi sex tilskipanir, m...

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. október 2010

S-460/2010

Ákæruvaldið (Þorsteinn Skúlason fulltrúi) gegn Ágústi Karli Ágústssyni og Katrínu Jónsdóttur (Klemenz Eggertsson hdl)
Lykilorð: Sektir.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu voru sakfelld fyrir brot á iðnaðarlögum.

...Nánar tiltekið hafi með reglugerð nr. 495/2001, um viðurkenningu á starfi og starfsþjálfun í iðnaði í öðru EES-ríki, verið felldar úr gildi hér á landi sex tilskipanir, m...

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2006

405/2005

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn X (Jónatan Sveinsson hrl)

X, sem var ítalskur ríkisborgari, var ákærður fyrir brot gegn iðnaðarlögum með því að hafa starfað að löggiltri iðngrein hér á landi, nánar tiltekið trésmíðum, án þess að hafa aflað sér viðurkenningar á starfsréttindum. Samkvæmt reglugerð um löggiltar iðngreinar voru trésmíðar ekki meðal slíkra greina, en það var á hinn bóginn húsasmíði. Í héraðsdómi var talið unnt með stoð í 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 að fella dóm á málið eins og iðngreinin hefði verið tilgreind sem húsasmíði í ákæru. Hæstiréttur taldi að með því hefði verið farið út fyrir heimild ákvæðisins, auk þess sem varhugavert væri að slá því föstu að vörn hefði ekki orðið áfátt vegna þessa, enda yrði ekki séð að málflytjendum hefði í héraði gefist kostur á að tjá sig um þetta efni. Var því talið óhjákvæmilegt við úrlausn málsins að horfa aðeins til orðalags ákæru. Háttsemin sem þar var lýst gat ekki fallið undir það ákvæði iðnaðarlaga sem X var borinn sökum um að hafa brotið gegn og jafnframt lá ekki fyrir viðhlítandi lýsing á þeim verkum sem X sinnti í starfi sínu þannig að taka mætti afstöðu til þess hvort þau hafi átt undir löggilta iðngrein. Vegna þessara annmarka á ákæru og reifun málsins var talið óhjákvæmilegt að vísa því af sjálfsdáðum frá héraðsdómi.

...einnig reglugerð nr. 495/2001”. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Verjandi ákærða krefst þess að ákærði verði sýknaður og honum tildæmd...

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2006

404/2005

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn X (Jónatan Sveinsson hrl)

X, sem var ítalskur ríkisborgari, var ákærður fyrir brot gegn iðnaðarlögum með því að hafa starfað að löggiltri iðngrein hér á landi, nánar tiltekið rafiðnaði, án þess að hafa aflað sér viðurkenningar á starfsréttindum. Samkvæmt reglugerð um löggiltar iðngreinar var rafiðnaður ekki meðal slíkra greina, en það var á hinn bóginn rafvirkjun. Í héraðsdómi var talið unnt með stoð í 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 að fella dóm á málið eins og iðngreinin hefði verið tilgreind sem rafvirkjun í ákæru. Hæstiréttur taldi að með því hefði verið farið út fyrir heimild ákvæðisins, auk þess sem varhugavert væri að slá því föstu að vörn hefði ekki orðið áfátt vegna þessa, enda yrði ekki séð að málflytjendum hefði í héraði gefist kostur á að tjá sig um þetta efni. Var því talið óhjákvæmilegt við úrlausn málsins að horfa aðeins til orðalags ákæru. Þar sem að háttsemin sem þar var lýst gat ekki fallið undir það ákvæði iðnaðarlaga sem X var borinn sökum um að hafa brotið gegn var talið óhjákvæmilegt að vísa málinu af sjálfsdáðum frá héraðsdómi.

...einnig reglugerð nr. 495/2001. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Verjandi ákærða krefst þess að hann verði sýknaður. Þá krefst verjandinn...