Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 490/1997"

4 dómar fundust

Landsréttur birt 2. nóvember 2018

159/2018

Erna Sigfúsdóttir (Kristján B. Thorlacius lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

E var skipuð lögreglufulltrúi við embætti Lögregluskóla ríkisins árið 2014 og gegndi þeirri stöðu þar til embætti hennar var lagt niður 1. ágúst 2015. Í bréfi skólastjóra Lögregluskólans, þar sem ákvörðunin var tilkynnt, var ástæða niðurlagningarinnar sögð vera rekstrarleg og hagræðing í starfsemi skólans. E höfðaði mál gegn Í og krafðist bóta vegna niðurlagningar stöðunnar. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ekki hefði verið sérstakt ákvæði um það í lögreglulögum nr. 90/1996 hver færi með vald til að skipa lögreglufulltrúa við Lögregluskólann á þeim tíma þegar embætti E var lagt niður. Hins vegar voru fyrirmæli um það í reglugerð að slíkt vald væri í höndum skólastjóra og var talið að reglugerðin hefði haft næga stoð í 39. gr. lögreglulaga. Samkvæmt þessu og þar sem ekki naut við sérstakra lagafyrirmæla um annað var talið að ráðherra hefði verið heimilt að kveða á um það í reglugerð að skólastjóri skipaði í embætti lögreglumanna við skólann. Af því og 31. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þótti jafnframt leiða að frá og með gildistöku reglugerðar nr. 445/2015 hinn 11. maí 2015 hafi ákvörðun um að veita lögreglumanni við skólann lausn frá störfum verið í höndum skólastjóra. Ekki var fallist á það með E að brotið hefði verið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga, að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga, að borið hefði að leita sérstaklega eftir afstöðu E til uppsagnarinnar áður en hún tók gildi eða að starf E hefði ekki verið lagt niður. Þá var fallist á með héraðsdómi að hafna öðrum málsástæðum E. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu Í.

...445/2015, um breyting á reglugerð nr. 490/1997, um Lögregluskóla ríkisins, sem tók gildi 11. maí 2015, var mælt fyrir um að skólastjóri skyldi skipa lögreglumenn innan skólans og...

Landsréttur birt 2. nóvember 2018

158/2018

Sigrún Ásgeirsdóttir (Kristján B. Thorlacius lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Þ var skipaður lögreglufulltrúi við embætti Lögregluskóla ríkisins 2002 og gegndi þeirri stöðu þar til embætti hans var lagt niður frá 1. ágúst 2015 að telja. Í bréfi skólastjóra Lögregluskóla ríkisins, þar sem ákvörðunin var tilkynnt, var ástæða niðurlagningarinnar sögð vera rekstrarleg og hagræðing í starfsemi skólans. Þ höfðaði mál gegn Í og krafðist bóta vegna niðurlagningar stöðunnar og eftir andlát hans tók eiginkona hans við rekstri málsins. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ekki hefði verið sérstakt ákvæði um það í lögreglulögum nr. 90/1996 hver færi með vald til að skipa lögreglufulltrúa við Lögregluskólann á þeim tíma þegar embætti Þ var lagt niður. Hins vegar voru fyrirmæli um það í reglugerð að slíkt vald væri í höndum skólastjóra og var talið að reglugerðin hefði haft næga stoð í 39. gr. lögreglulaga. Samkvæmt þessu og þar sem ekki naut við sérstakra lagafyrirmæla um annað var talið að ráðherra hefði verið heimilt að kveða á um það í reglugerð að skólastjóri skipaði í embætti lögreglumanna við skólann. Af því og 31. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þótti jafnframt leiða að frá og með gildistöku reglugerðar nr. 445/2015 hinn 11. maí 2015 hafi ákvörðun um að veita lögreglumanni við skólann lausn frá störfum verið í höndum skólastjóra. Ekki var fallist á það með Þ að brotið hefði verið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga, að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga, að borið hefði að leita sérstaklega eftir afstöðu Þ til uppsagnarinnar áður en hún tók gildi eða að starf Þ hefði ekki verið lagt niður. Þá var fallist á með héraðsdómi að hafna öðrum málsástæðum Þ. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu Í.

...445/2015, um breyting á reglugerð nr. 490/1997, um Lögregluskóla ríkisins, sem tók gildi 11. maí 2015, var mælt fyrir um að skólastjóri skyldi skipa lögreglumenn innan skólans og...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. janúar 2018

E-2060/2016

Erna Sigfúsdóttir (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)
Lykilorð: Skaðabætur.

Hafnað var kröfu stefnanda um greiðslu bóta vegna niðurlagningar embættis hennar sem lögreglufulltrúa við Lögregluskóla ríkisins.

...445/2015, um breyting á reglugerð nr. 490/1997 um Lögregluskóla ríkisins, að skólastjóri Lögregluskólans skipaði lögreglumenn innan skólans og réði kennara og aðra starfsmenn skólans. Tók breytingin gildi við...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. janúar 2018

E-2059/2016

Sigrún Ásgeirsdóttir (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)
Lykilorð: Skaðabætur.

Hafnað var kröfu stefnanda um greiðslu bóta vegna niðurlagningar embættis hennar sem lögreglufulltrúa við Lögregluskóla ríkisins.

...445/2015, um breyting á reglugerð nr. 490/1997 um Lögregluskóla ríkisins, að skólastjóri Lögregluskólans skipaði lögreglumenn innan skólans og réði kennara og aðra starfsmenn skólans. Tók breytingin gildi við...