Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 488/2021"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 21. maí 2026 kl. 16:37

354/2025

Margrét Rósa Einarsdóttir (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður)

Í málinu var deilt um hvort V hf. bæri bótaábyrgð gagnvart M á meintu vatnstjóni sem orðið hefði á fasteign hennar í kjölfar þess að inntakslögn sprakk sem M taldi mega rekja til mistaka starfsmanns H hf. við skipti á rennslismæli í hitaveitugrind í fasteigninni en M krafðist viðurkenningar á bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu H hf. hjá V hf. Með hinum áfrýjaða dómi var ekki talið sannað að ætlað tjón á fasteign M hefði orsakast af saknæmri háttsemi af hálfu H hf. og var V hf. sýknað af kröfum M. Landsréttur staðfesti dóminn með vísan til forsendna hans og að því gættu að sérstaklega hefði verið byggt á því að beita bæri ströngu sakarmati við úrlausn málsins vegna sérfræðiábyrgðar sem hvíldi á H hf. í ljósi starfsemi þess.

...Þessir skilmálar hafi gilt þar til reglugerð nr. 488/2021 hafi verið sett með gildistöku 5. maí 2021. Í 4. kafla skilmálanna séu efnisákvæði um tengingar, m.a. heimæðar og...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. apríl 2025

E-3299/2023

Margrét Rósa Einarsdóttir (Sigurður Gústavsson Hafstað lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Telma Sif Reynisdóttir lögmaður)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu hins stefnda vátryggingafélags vegna ætlað tjóns af völdum þess að vatnslögn sprakk í frosti og vatn flæddi um fasteign stefnanda. Talið var ósannað að hið ætlaða tjón hefði orsakast af saknæmri háttsemi starfsmanna veitustofnunar sem var með ábyrgðartryggingu hjá stefnda. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda.

...Þessir skilmálar hafi gilt þar til reglugerð nr. 488/2021 hafi verið sett með gildistöku 5. maí 2021. Í 4. kafla skilmálanna séu efnis- ákvæði um tengingar, m.a. heimæðar...