Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 47/2003"
1 dómar fundust
Á árinu 2002 var Þ ráðinn leikhússtjóri L. H var meðal umsækjenda um starfið og taldi hún að henni hefði verið mismunað við ráðninguna á grundvelli kynferðis síns. Kærði hún ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála og komst nefndin að þeirri niðurstöðu að L hefði brotið gegn 1. mgr. 24. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla þegar það réð Þ til starfans en ekki H. Höfðaði J mál þetta vegna H með heimild í 5. mgr. 3. gr. sömu laga og var talið að J hefði verið þetta heimilt. Talið var að það væri meginregla vinnuréttar, að atvinnurekandi hefði um það frjálsar hendur, hvern hann veldi til starfa í sína þágu. Því vali væru þó settar skorður, sem leiddar yrðu af ákvæðum laga nr. 96/2000, þegar kona og karl sæktu um sama starfið. Þótt H hefði að baki lengra háskólanám en Þ hafi ekki verið gert líklegt að það nám eða önnur reynsla nýtist henni þannig, að hún yrði talin jafnhæf eða hæfari honum til að stjórna leikhúsi. Leikhúsráð L hafi metið það svo á grundvelli umsóknargagna og viðtala við umsækjendur að menntun og reynsla Þ, sem nær öll hafi verið á sviði leiklistar, auk sjónarmiða um listræn stefnumið í leikhúsinu og fjármál og rekstur þess, hafi skipaði honum framar H við ákvörðun um ráðninguna. H taldist ekki hafa sýnt fram á að þetta mat hafi verið ómálefnalegt og var því ekki fallist á að henni hefði verið mismunað eftir kynferði.
...nefndra laga hefur félagsmálaráðherra sett reglugerð nr. 47/2003 um starfsemi Jafnréttisstofu. Þar segir í 2. mgr. 9. gr., að framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu meti, að höfðu samráði við kæranda og með...