Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 455/1993"
2 dómar fundust
Stefnandi rekur happdrættisvélar samkvæmt samningi við stefnda. Deilt var um hvort stefndi hefði brotið á stefnanda með því að semja við hann um hlutfallslega lægra endurgjald fyrir reksturinn en suma aðra rekstraraðila slíkra véla og stefnandi ætti því rétt til skaðabóta úr hendi stefnda. Hafnað var sjónarmiðum stefnanda um að stefndi hefði í þessum efnum brotið jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar eða þá reglu að ákvarðanir stjórnvalda skuli byggðar á málefnalegum sjónarmiðum. Öðrum sjónarmiðum stefnanda um að stefndi hefði brotið á rétti stefnanda, honum til tjóns, var sömuleiðis hafnað. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda.
...13/1973 um Happdrætti Háskóla Íslands og reglugerð nr. 455/1993 um pappírslaust peningahappdrætti Happdrættis Háskóla Íslands. Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar sé stefndi sjálfstæð stofnun í eigu Háskóla Íslands, sem...
H, umboðsaðili HHÍ, rak tvo sölustaði með sjálfvirkum happdrættisvélum í R. Kvað H sölustaðina í upphafi hafa verið opna frá kl. 10 til 1. Í janúar 1994 hafi lögreglan mælt fyrir um að H bæri að loka stöðunum kl. 23:30 samkvæmt 28. gr. lögreglusamþykktar R. Í bréfi lögreglustjóra dagsettu 4. júní 1996 kom fram að dómsmálaráðuneytið hefði komist að þeirri niðurstöðu að 28. gr. lögreglusamþykktar R ætti ekki við um starfsemi H og teldi embættið því að ekki giltu neinar reglur um opnunartíma staðanna. Taldi H sig eiga rétt til skaðabóta vegna aðgerða lögreglu og höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og lögreglustjóranum í R. Talið var að fyrirsvarsmönnum H hefði verið kunnugt um afstöðu lögreglustjóra um að rekstur H heyrði undir 28. gr. lögreglusamþykktar R. Var talið að afskipti lögreglunar af starfsemi H hafi verið til að halda uppi reglum sem fram koma í 3. mgr. 28. gr. samþykktarinnar og hafi þau verið liður í almennu eftirliti lögreglunnar, sem ekki falli undir stjórnsýslulög nr. 37/1993. Talið var að H hefði ekki látið reyna á umræddan skilning lögreglunnar fyrr en í maí 1996 og í framhaldinu hafi lögreglustjóri fallið frá fyrri skilningi sínum. Var talið að starfsemi H hefði fallið undir ákvæði 3. mgr. 28. gr. lögreglusamþykktar R og hafi lögreglu því verið heimilt að hafa afskipti af lokunartíma sölustaða H. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna íslenska ríkið og lögreglustjórinn í R af kröfum H.
...Íslands verið umboðsaðili fyrir happdrættið. Happdrætti þetta er rekið undir heitinu Gullnáman, sbr. reglugerð nr. 455/1993 um pappírslaust peningahappdrætti Háskóla Íslands. Rekstur happdrættisins byggist á notkun sjálfvirkra happdrættisvéla, sem...