Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 411/1973"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 18. febrúar 2016

375/2015

A (Sigurður Jónsson hrl) gegn Íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)

A krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Í vegna örorku og miska sem hún varð fyrir þegar hún var vistuð á meðferðarheimilinu Byrginu á árunum 2003 til 2005. Með dómi Hæstaréttar í málinu nr. 334/2008 var forstöðumaður heimilisins sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A og gert að greiða henni skaðabætur en A var 17 ára þegar brotin áttu sér stað. Í dómi Hæstaréttar kom fram að móðir A hefði komið henni til dvalar í Byrginu að höfðu samráði við hana sjálfa og hefði Barnaverndarstofa hvorki haft þar milligöngu né starfsmönnum hennar verið kunnugt um dvöl A þar. Yrði skaðabótaskylda Í því ekki reist á því að Barnaverndarstofa hefði samþykkt ráðstöfunina eða með einhverju móti brugðist eftirlitsskyldu sinni. Hefði Byrgið ekki haft heimild Barnaverndarstofu til að taka við börnum og henni því ekki borið að hafa eftirlit með starfseminni. Þá hefði landlæknir ekki heldur haft eftirlitsskyldu með heimilinu og yrði skaðabótaskylda Í því ekki reist á því að hann hefði ekki sinnt eftirliti með starfseminni. Loks var ekki fallist á það með A að Í bæri bótaábyrgð eftir reglu skaðabótaréttar um vinnuveitendaábyrgð, enda hefði hvorki Byrgið verið rekið af Í né forstöðumaður þess verið ríkisstarfsmaður. Var Í því sýknað af kröfu A.

...laganna og þágildandi reglugerð nr. 411/1973 um landlækni og landlæknisembættið. Af þeim sökum verður skaðabótaskylda stefnda ekki reist á því að áfrýjandi hafi orðið fyrir tjóni vegna þess að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. mars 2015

E-5204/2013

A (Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)
Lykilorð: Skaðabætur. Sýkna.

Sýknað af kröfu um viðurkenningu á skaðabótaskyldu.

...Í reglugerð nr. 411/1973 sé kveðið á um faglegt eftirlit landlæknis með öllum heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstéttum. Það sé meginregla íslensks réttar að stjórnsýslan sé lögbundin. Af þeirri reglu leiði...