Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 371/1998"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 28. september 2000

72/2000

Menntaskólinn í Kópavogi (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Allan Rettedal (Ragnar Halldór Hall hrl)

Framhaldsskólakennaranum A var veitt skrifleg áminning í framhaldi af fundi hjá skólameistara. Að mati Hæstaréttar var meðferð skólameistara á málinu haldin verulegum annmörkum, þar sem A hafði verið boðaður til fundar um málið án hæfilegs fyrirvara og án þess að honum hefði verið tilkynnt um efni fundarins. Þá hafði A ekki verið gefinn kostur á afriti af kvörtunarbréfi frá nemendum, sem var orsök að boðun fundarins, og honum ekki kynnt gögn um fyrri atvik, sem skólameistari skírskotaði til. Ennfremur varð ekki séð, að A hefði verið tjáð með óyggjandi hætti, að áminning í skilningi 21. gr. laga nr. 70/1996 gæti fylgt í kjölfar fundarins. Að auki var efni áminningarinnar talið ófullkomið í ýmsu tilliti. Af atvikum mátti ráða, að skólameistari hafi talið sér fært að fara með málið sem framhald fyrri kvartana og umræðna um kennslustörf A, í stað þess að miða andmælarétt hans og aðra stöðu við hinn beina aðdraganda þess. Staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu héraðsdóms, að áminningin til A hefði ekki fullnægt skilyrðum 21. gr. laga nr. 70/1996, meðal annars vegna þess, að á honum hafi verið brotinn lögvarinn andmælaréttur samkvæmt þeim lögum og 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

...70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en um skyldur hans er nánar mælt fyrir um í reglugerð nr. 371/1998 um starfslið framhaldsskóla. Segir og þar í 5...