Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 348/1976"

3 dómar fundust

Hæstiréttur birt 22. febrúar 2018

101/2017

Gunnlaugur Hrannar Jónsson (Sigmundur Hannesson lögmaður) gegn Happdrætti Háskóla Íslands (Jóhannes Bjarni Björnsson lögmaður)

G höfðaði mál á hendur H til heimtu vinnings í happdrætti sem H rak á grundvelli laga nr. 13/1973 um Happdrætti Háskóla Íslands. Höfðu G og H gert með sér samkomulag um að iðgjald vegna endurnýjunar miða í eigu G skyldi skuldfært á kreditkort hans. Þegar H reyndi skuldfærslu vegna iðgjalds í tilgreint skipti var henni hafnað þar sem G hafði þá nýtt þær heimildir sem hann hafði til skuldfærslu á kortið. Miði G var því ekki með í útdrætti sem fram fór tæpum mánuði síðar en þá kom vinningur á miðann. Krafðist G aðallega greiðslu vinningsfjárhæðarinnar að frádregnu endurnýjunariðgjaldinu, en til vara skaðabóta að sömu fjárhæð. Fyrir lá að ágreiningur málsaðila hafði ekki verið borin undir nefnd sem starfaði samkvæmt d. lið 1. mgr. 1. gr. laga nr. 13/1973. Talið var að úrskurðarvald nefndarinnar gæti einungis tekið til ágreinings um það hvort útdráttur vinninga væri í samræmi við reglur sem einkum væri að finna í 16. til 20. gr. reglugerðar nr. 348/1976 um Happdrætti Háskóla Íslands. Í þessu máli deildu aðilar um efni samnings þeirra um aðferð við greiðslu endurnýjunariðgjalds og hvort H hefði í starfsemi sinni farið eftir samningnum og þeim reglum sem honum bæri við afgreiðslu á kröfu G um útborgun vinningsins. Með vísan til 70. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 og 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála tæki úrskurðarvald nefndarinnar því ekki til ágreiningsins. Talið var að skýrt kæmi fram í skilmálum samnings aðila að miði væri ekki gildur nema greiðsla hefði borist tímanlega fyrir útdrátt. Hefði það því verið á ábyrgð G að sjá til þess að unnt væri að skuldfæra kort hans fyrir endurnýjun miðans. Þá ættu ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 ekki við þar sem um einkaréttarlegan samning væri að ræða. Upplýst var að í 1703 tilvikum í starfsemi H frá árinu 2009 og fram á árið 2017 hefði komið vinningur á miða sem ekki hefði verið greitt endurnýjunariðgjald af. Í öllum þeim tilvikum, sem væru sambærileg tilviki G, hefðu mál verið afgreidd með sama hætti og hans mál að einu frátöldu þar sem eigandi miða fékk greiddan vinning. Talið var að þótt H hefði með því eina tilviki, án þess að haldbær rök hefðu verið færð fyrir því, mismunað þátttakendum í happdrættinu, lægi samt fyrir að mál G hefði verið afgreitt í samræmi við önnur tilvik. Gæti G því ekki reist kröfu sína um skaðabætur á því að við úrlausn hans máls yrði öðru sinni vikið frá jafnræðissjónarmiðum. Var H því sýknaður af kröfum G.

...73/1973 um Happdrætti Háskóla Íslands og reglugerð nr. 348/1976 sem sett er með stoð í lögunum. Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laga nr. 73/1973, með áorðnum breytingum...

Hæstiréttur birt 4. janúar 2017

812/2016

Guðlaugur Jakob Karlsson (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Happdrætti Háskóla Íslands Háskóla Íslands, íslenska ríkinu, Íslandsspilum sf, Rauða krossi Íslands (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl), SÁÁ sjúkrastofnun (Ólafur Helgi Árnason hrl) og Slysavarnarfélaginu Landsbjörg (Stefán A. Svensson hrl)

G krafðist þess að ógilt yrðu leyfi Í sf. og H til reksturs söfnunarkassa með peningavinningum og peningahappdrættis. Þá krafðist hann skaðabóta vegna þess tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna slíks rekstrar. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti, kom fram að G hefði hvorki gert viðhlítandi grein fyrir sameiginlegri aðild málsins til varnar né sameiginlegri ábyrgð allra stefndu á þeim skaðabótakröfum sem hafðar væru uppi í málinu. Var málinu því vísað frá dómi með vísan til e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

...og Happdrætti Háskóla Íslands sem er sjálfstæð stofnun í eigu Háskóla Íslands, sbr. reglugerð nr. 348/1976. Liggur þannig fyrir að um er að ræða aðskilda lögaðila sem starfa á...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2016

E-854/2016

A (Sverrir Bergmann Pálmason hdl) gegn Happdrætti Háskóla Íslands (Hörður Helgi Helgason hdl)
Lykilorð: Samningur.

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu vinnings á miða sem ekki hafði verið endurnýjaður.

...73/1973 um Happdrætti Háskóla Íslands og reglugerð nr. 348/1976 sem sett er með stoð í lögunum. Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laga nr. 73/1973, með áorðnum breytingum...