Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 344/1990"
1 dómar fundust
Félag íslenskra flugumferðarstjóra (F) höfðaði mál gegn íslenska ríkinu (Í) og krafðist viðurkenningar á því að H félagsmaður F hefði átt rétt á dagpeningum í samræmi við reglur og ákvarðanir ferðakostnaðarnefndar er hún dvaldi fjarri starfsstöð sinni á vegum Flugmálastjórnar Íslands vegna námskeiðs- og þjálfunarstarfa á tímabilinu frá október 1998 til maíloka 1999. Þá var krafist viðurkenningar á því að brotið hefði verið gegn grein 5.7.1 í kjarasamningi F og ríkissjóðs með því að neita að greiða H slíka dagpeninga. Í krafðist frávísunar málsins á grundvelli vanreifunar og aðildarskorts. Var niðurstaða félagsdóms staðfest með vísan til forsendna.
...þarf hlutaðeigandi að fá sérþjálfun tengda hverjum vinnustað, eða svonefnda staðar-rating, sbr. reglugerð nr. 344/1990 um skírteini gefin út af flugmálastjórn með síðari breytingum, sbr. núgildandi reglugerð nr...