Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 343/2006"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 8. nóvember 2012

547/2011

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Sólheimum ses (Karl Axelsson hrl)

Félagsmálaráðherra gerði 8. maí 2004 þjónustusamning til 31. desember 2008 við sjálfseignarstofnunina S, þar sem ráðuneytið skuldbatt sig meðal annars til að leggja til að tiltekin fjárhæð yrði veitt til starfsemi S með fjárlögum hvers árs. Með fjárlögum ársins 2009 var fjárhæð til handa S skert um 4% frá því sem aðilar höfðu samið um. S höfðaði mál á hendur Í og krafðist aðallega viðurkenningar þess að skerðingin hefði verið óheimil, þar sem hún bryti gegn 65. gr. og 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, en til vara að viðurkennt yrði að Í hefði með skerðingunni vanefnt skuldbindingar sínar að samningnum. Í dómi Hæstaréttar var talið að Alþingi hefði haft vald til að ákveða fjárveitingu til S og að S gæti ekki byggt rétt til frekari fjárveitingar á útrunnum samningi. Var Í því sýknað af kröfum S.

...laganna setti fjármálaráðherra reglugerð nr. 343/2006 um samninga um rekstrarverkefni sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en eins árs. Í 17. gr. reglugerðarinnar kemur fram að við...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. júlí 2011

E-4760/2010

Sólheimar sjálfseignarstofnun (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Fallist var á kröfu stefnanda, Sólheima sjálfseignarstofnunar, um viðurkenningu á því að stefndi, íslenska ríkið, hefði vanefnt samningsskuldbindingar sínar samkvæmt þjónustusamningi stefnanda við félagsmálaráðuneytið með því að skerða fjárframlag til stefnanda um 4% með fjárlögum ársins 2009.

...málefni fatlaðra og 30. gr. laga nr. 88/1997 um fjárreiður ríkisins, sbr. reglugerð nr. 343/2006 um samninga um rekstrarverkefni sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en...