Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 336/1993"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 15. mars 2001

354/2000

Hörður Einarsson (sjálfur) gegn tollstjóranum í Reykjavík (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Starfsmenn T opnuðu fjórar bókasendingar til H í því skyni að nálgast vörureikninga svo að ákvarða mætti virðisaukaskatt af vörunni. H taldi T óheimilt að stunda reglubundna skoðun og opnun bókasendinga og gilti einu í hvaða tilgangi slík skoðun væri gerð. Áleit hann aðgerðirnar höggva að einkalífi sínu og tjáningarfrelsi. T taldi 45. gr. tollalaga hafa heimilað þá framkvæmd við tollmeðferð póstsendinga, sem um væri deilt, en þar væri kveðið á um að, tollgæslan mætti skoða og rannsaka allar vörur, sem fluttar væru til landsins. Hæstiréttur féllst á það með héraðsdómi, að í umdeildri tollmeðferð hefði ekki falist brot á 65. gr. eða 73. gr. stjórnarskrárinnar. Hins vegar var talið, að tollframkvæmdin hefði gengið í berhögg við einkalífsvernd stjórnarskrárinnar auk meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, en skattheimtusjónarmið hefðu aðallega ráðið henni. Fallist var á meginefni kröfu H og viðurkennt, að T hefði verið óheimilt að opna umdeildar bókasendingar á þann hátt sem gert var í þeim tilgangi einum að nálgast vörureikninga eða önnur gögn til ákvörðunar aðflutningsgjalda.

...Fram er komið, að erlend blöð og tímarit sættu áður sams konar tollmeðferð og bókasendingar frá útlöndum, en því var breytt með reglugerð nr. 336/1993 um innheimtu virðisaukaskatts af...