Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 293/2002"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 30. mars 2006

403/2005

Albert Bergmann Þorvaldsson (Björn Ólafur Hallgrímsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Talið var að ákvörðun sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli um að svipta A aðgangsheimild að varnarsvæðum til bráðabirgða í nóvember 2002 hafi haft næga efnislega heimild í 10. gr. laga nr. 82/2000 um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna. Þurfti þá ekki að leysa úr því hvort ákvæði reglugerðar nr. 293/2002 hefðu lagastoð. Annmarkar sem A taldi vera á umræddri ákvörðun, meðal annars að andmælaréttar hans hafi ekki verið gætt, voru ekki taldir þess eðlis eins og á stóð, að ákvörðunin yrði talin ógild af þeim sökum. Var A því talinn hafa verið réttilega sviptur aðgangsheimild sinni til bráðabirgða. Með vísan til þeirra brýnu hagsmuna A sem tengdust aðgangsheimild hans að svæðinu, en hann komst ekki til vinnu sinnar án hennar, var sá dráttur sem varð á að fella bráðabrigðasviptinguna úr gildi, talinn ólögmætur. Var ekki sýnt fram á að efnisleg skilyrði hefðu verið til að svipta hafi mátt A varanlega aðgangsheimild sinni, svo sem loks var gert 1. apríl 2003. Var ríkið talið bera skaðabótaábyrgð á því tjóni A sem af þessu leiddi. Ekki var fallist á kröfu ríkisins um sýknu vegna aðildarskorts. Voru A dæmdar bætur vegna launamissis fram til loka aprílmánaðar 2003, er ráðningarsamningur hans rann út, en ekki vegna ætlaðs fjártjóns hans eftir 1. maí 2003, sem hann reisti á því að hafa ekki fengið atvinnu annars staðar. Þá var kröfu hans um miskabætur hafnað.

...Heldur hann því fram að ákvörðun sýslumanns um þessa bráðabirgðasviptingu aðgangsheimildar standist ekki lög, bæði vegna þess að ákvæði í reglugerð nr. 293/2002 um umferð og dvöl manna á...