Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 228/1993"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 15. mars 2001

354/2000

Hörður Einarsson (sjálfur) gegn tollstjóranum í Reykjavík (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Starfsmenn T opnuðu fjórar bókasendingar til H í því skyni að nálgast vörureikninga svo að ákvarða mætti virðisaukaskatt af vörunni. H taldi T óheimilt að stunda reglubundna skoðun og opnun bókasendinga og gilti einu í hvaða tilgangi slík skoðun væri gerð. Áleit hann aðgerðirnar höggva að einkalífi sínu og tjáningarfrelsi. T taldi 45. gr. tollalaga hafa heimilað þá framkvæmd við tollmeðferð póstsendinga, sem um væri deilt, en þar væri kveðið á um að, tollgæslan mætti skoða og rannsaka allar vörur, sem fluttar væru til landsins. Hæstiréttur féllst á það með héraðsdómi, að í umdeildri tollmeðferð hefði ekki falist brot á 65. gr. eða 73. gr. stjórnarskrárinnar. Hins vegar var talið, að tollframkvæmdin hefði gengið í berhögg við einkalífsvernd stjórnarskrárinnar auk meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, en skattheimtusjónarmið hefðu aðallega ráðið henni. Fallist var á meginefni kröfu H og viðurkennt, að T hefði verið óheimilt að opna umdeildar bókasendingar á þann hátt sem gert var í þeim tilgangi einum að nálgast vörureikninga eða önnur gögn til ákvörðunar aðflutningsgjalda.

...E-1, er notað en telur notkun þess eyðublaðs vera mun flóknari, sbr. reglugerð nr. 228/1993 um tollskýrslur og fylgiskjöl þeirra. Ákvæði 6. gr. og 10. gr. reglugerðarinnar verði...