Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 227/1995"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 30. mars 2006

403/2005

Albert Bergmann Þorvaldsson (Björn Ólafur Hallgrímsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Talið var að ákvörðun sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli um að svipta A aðgangsheimild að varnarsvæðum til bráðabirgða í nóvember 2002 hafi haft næga efnislega heimild í 10. gr. laga nr. 82/2000 um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna. Þurfti þá ekki að leysa úr því hvort ákvæði reglugerðar nr. 293/2002 hefðu lagastoð. Annmarkar sem A taldi vera á umræddri ákvörðun, meðal annars að andmælaréttar hans hafi ekki verið gætt, voru ekki taldir þess eðlis eins og á stóð, að ákvörðunin yrði talin ógild af þeim sökum. Var A því talinn hafa verið réttilega sviptur aðgangsheimild sinni til bráðabirgða. Með vísan til þeirra brýnu hagsmuna A sem tengdust aðgangsheimild hans að svæðinu, en hann komst ekki til vinnu sinnar án hennar, var sá dráttur sem varð á að fella bráðabrigðasviptinguna úr gildi, talinn ólögmætur. Var ekki sýnt fram á að efnisleg skilyrði hefðu verið til að svipta hafi mátt A varanlega aðgangsheimild sinni, svo sem loks var gert 1. apríl 2003. Var ríkið talið bera skaðabótaábyrgð á því tjóni A sem af þessu leiddi. Ekki var fallist á kröfu ríkisins um sýknu vegna aðildarskorts. Voru A dæmdar bætur vegna launamissis fram til loka aprílmánaðar 2003, er ráðningarsamningur hans rann út, en ekki vegna ætlaðs fjártjóns hans eftir 1. maí 2003, sem hann reisti á því að hafa ekki fengið atvinnu annars staðar. Þá var kröfu hans um miskabætur hafnað.

...Af þessu leiddi að viðskipti stefnanda voru andstæð reglugerð nr. 227/1995 sem þá gilti um Umsýslustofnun varnarmála, sbr. nú reglugerð nr. 902/2002 um ráðstöfun afgangsvöru varnarliðsins. Hafa verði...