Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 196/2002"
1 dómar fundust
L krafðist ógildingar á úrskurði sjávarútvegsráðuneytisins, þar sem staðfest var ákvörðun Fiskistofu, um að taka ekki mið af töfum skips L frá veiðum á árinu 2001 við úthlutun aflahlutdeildar í kolmunna. L taldi sérreglu 3. mgr. 5. gr. laga um fiskveiðar utan lögsögu Íslands eiga við, og taka ætti tillit til þeirra tafa sem urðu er skip L undirgekkst umfangsmiklar viðgerðir. Talið var að skýra yrði regluna svo að meiri háttar tjón eða bilanir yrðu einar og sér að geta hafa valdið því að skip tefðist samfellt frá veiðum í minnst sex mánuði, en L hafði samhliða viðgerðinni látið fara fram viðhald og endurbætur á skipinu. Engin gögn höfðu verið lögð fram um aðgreiningu milli verkþátta, sem tengdust viðgerð á meiri háttar bilunum og skemmdum vegna tjóns á skipunu, og þeirra sem lutu að öðrum viðgerðum eða breytingum. Var málið svo vanreifað af hendi L að óhjákvæmilegt var að vísa því sjálfkrafa frá héraðsdómi.
...mars 2002 reglugerð nr. 196/2002 um úthlutun aflahlutdeildar og aflamarks í kolmunna. Var þetta gert með stoð í ákvæðum laga nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Í...