Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 192/2008"
1 dómar fundust
Ákæruvaldið (
Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari)
gegn
Atla Hrannari Heimissyni (
Bjarni Hauksson lögmaður)
A var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa lokað dyrum íbúðar á lögreglumenn og leitast þannig við að hindra framkvæmd starfa lögreglumannanna, sem voru við skyldustörf, og haldið því áfram eftir að búið var að sparka upp dyrnar með því að hindra lögreglumenn við að fara inn í íbúðina. Með því tálmaði hann að handhafi lögregluvalds gæti gegnt skyldustörfum sínum. Kröfu A um frávísun málsins frá héraðsdómi, sem byggði á því að málið hefði verið rannsakað af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu í stað héraðssaksóknara og að rannsóknargögn væru ekki í samræmi við ákæru, var hafnað. Refsing A var ákveðin sem hegningarauki við tvo fyrri dóma héraðsdóms en honum ekki gerð frekari refsing.
...8 Það verklag að lögreglumenn riti aðkomuskýrslur og að skýrslur af mönnum sem handteknir eru vegna valdstjórnarbrota séu teknar af staðarlögreglu fær stoð í reglugerð nr. 192/2008, sbr. nú...