Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 170/2009"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 10. mars 2016

436/2015

Óli Ásgeir Keransson Stueland (Sveinn Guðmundsson hrl) gegn Tryggingarstofnun ríkisins (Erla Svanhvít Árnadóttir hrl)

Árið 2013 samþykkti T umsókn Ó um styrk til bifreiðakaupa vegna fjölfatlaðs sonar hans, þó þannig að fjárhæð sambærilegs styrks sem Ó fékk árið 2009 var að fullu dreginn frá síðari styrknum. Í málinu krafðist Ó þess að T yrði gert að greiða sér styrkinn óskertan og reisti kröfu sína á því að ákvörðun T stæðist hvorki 1. og 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar né ákvæði laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð og reglugerðar nr. 170/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða. Ekki var fallist á með T að Ó væri ekki rétthafi þeirra hagsmuna sem um væri deilt í málinu þannig að sýkna bæri hann vegna aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þótt Ó hefði sótt um styrk til kaupa á nýrri bifreið fyrir hönd sonar síns hefði T litið á Ó sem umsækjanda um styrkinn. Þá hefði styrkurinn verið greiddur Ó sem hefði fest kaup á bifreiðinni og verið skráður eigandi hennar. Talið var að dómstólar væru til þess bærir samkvæmt 60. gr. stjórnarskrárinnar að fjalla um lögmæti ákvörðunarinnar. Á hinn bóginn væri það ekki á valdsviði þeirra að leggja sérfræðilegt mat á það hvort T hefði sem stjórnvaldi verið rétt að veita styrkinn og þá hversu háan með tilliti til sjúkdóms sonar Ó, fötlunar og annarra aðstæðna. Með vísan til þess að í 3. mgr. 10. gr. laga nr. 99/2007 hefði verið mælt fyrir um að heimilt væri að veita styrk á fimm ára fresti vegna sama einstaklings þegar Ó sótti um styrkinn og T tók ákvörðunina, var talið að hún hefði verið lögmæt og málefnaleg. Var T því sýknað af kröfu Ó.

...Með heimild í ofangreindu ákvæði hafi verið sett reglugerð nr. 170/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða. Þar sem sonur stefnanda uppfylli öll þau skilyrði sem...