Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 168/1970"
1 dómar fundust
Árið 2001 greindist salmónella í saursýnum, sem tekin voru á svínabúi, sem S ehf. rekur. Til að ganga úr skugga um hvort kjöt svína frá búinu hefðu smitast af salmónellu við slátrun voru tekin stroksýni af kjötinu og þau rannsökuð með svokölluðu tecra-prófi. Ágreiningur reis milli S ehf. og Í hvort kostnaður af þessum sýnatökum og rannsóknum ætti að greiðast af S ehf. eða úr sérstökum sjóði samkvæmt 2. mgr. 11. gr. laga nr. 96/1997, þar sem kveðið sé á um landbúnaðarráðherra innheimti gjald af sláturleyfishöfum til að standa straum af kostnaði við heilbrigðiseftirlit kjötskoðunarlækna með sláturafurðum. Á það var fallist að kostnaður, sem hafði hlotist af sýnatökunni og rannsóknunum, félli undir umrætt ákvæði, svo og undir b. lið 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 708/1996, eins og það ákvæði hljóðaði á þeim tíma sem kostnaðurinn féll til. Var Í því gert að endurgreiða S ehf. þann kostnað, sem félagið hafði þurft að standa undir vegna rannsóknanna.
...og reglugerð nr. 168/1970 um heilbrigðisskoðun á sláturafurðum. Lögum nr. 30/1966 hafi verið breytt með lögum nr. 160/1994 og reglugerð nr. 168/1970 með reglugerð nr. 597...