Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 136/1995"
1 dómar fundust
X var saksóttur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið vöruflutningabifreið yfir sjö daga tímabil án þess að taka sér„lögboðna vikuhvíld.“ Var þetta í ákæru talið varða við a. lið 1. gr. reglugerðar nr. 136/1995 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna o.fl. í innanlandsflutningum og við flutning innan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. ákvæði reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 3820/85 um samhæfingu tiltekinnar löggjafar á sviði félagsmála er varðar flutninga á vegum, sbr. 6. mgr. 44. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Talið var að sjálfstæða verknaðalýsingu á broti varðandi hvíldartíma ökumanna væri hvorki að finna í 6. mgr. 44. gr. umferðarlaga né heldur í reglugerð nr. 136/1995 sem sett væri með stoð í lögunum. Væri því ekki um að ræða svo skýra refsiheimild að samrýmanleg væri 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar. Var X því sýknaður af kröfu ákæruvaldsins.
...umferðarlaga né heldur í reglugerð nr. 136/1995 sem sett væri með stoð í lögunum. Væri því ekki um að ræða svo skýra refsiheimild að samrýmanleg væri 1. mgr. 69...