Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 130/2016"
1 dómar fundust
Árekstur varð í ytri höfn Reykjavíkur með sæþotu og slöngubát með þeim afleiðingum að A, farþegi á sæþotunni, varð fyrir líkamstjóni. A höfðaði mál á hendur B og C, sem stýrðu sjóförunum, til viðurkenningar á bótaskyldu. Í hinum áfrýjaða dómi var viðurkennd óskipt skaðabótaskylda B og C. Áfrýjaði B dóminum fyrir sitt leyti. Í dómi Landsréttur var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest er varðar B. Litið var til alþjóðareglna um árekstra á sjó, matsgerðar dómkvaddra matsmanna og myndupptöku af atvikinu við mat á bótaskyldu. Var B ekki talinn hafa veitt slöngubátnum næga athygli, sem takmarkaði hvaða viðbrögð unnt var að grípa til þegar í óefni var komið. Jafnframt var B talinn hafa siglt of hratt miðað við aðstæður og að hann hefði ekki gætt að því hvort hætta væri á árekstri og ekki framkvæmt rétt stjórntök í tæka tíð til að forða árekstri. Var framangreint háttalag B ekki talið samræmast reglum 6, 7. 8 og 14. gr. nefndra alþjóðareglna. Var því siglingarlag B því metið honum til sakar. Hvorki var talið tilefni til að víkja frá meginreglu skaðabótaréttar um fulla og óskipta bótaábyrgð né að takmarka bótarétt A vegna eigin sakar eða áhættutöku.
...Eftirlit réttargæslustefnda samkvæmt reglugerð nr. 130/2016 felist í því að kanna skírteini báta hjá dreifingaraðilum og sjá til þess að eingöngu skip sem samþykkt eru samkvæmt reglugerðum séu markaðssett...