Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1165/2015"

4 dómar fundust

Landsréttur birt 12. febrúar 2026

102/2025

Gangverk ehf (Einar Brynjarsson lögmaður) gegn Rannsóknamiðstöð Íslands (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Í málinu var deilt um lögmæti synjunar R á umsókn G ehf. um staðfestingu á tilteknu þróunarverkefni, sbr. lög nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, en á grundvelli þeirra laga á nýsköpunarfyrirtæki, sem er eigandi að rannsóknar- eða þróunarverkefnum sem hlotið hafa staðfestingu R, rétt á sérstökum frádrætti frá álögðum tekjuskatti. Í dómi Landsréttar var rakið að eignarhald nýsköpunarfyrirtækis á þróunarverkefni og afurðum þess og fjárhagsleg áhætta fyrirtækisins af verkefninu væru ófrávíkjanleg skilyrði fyrir þeirri aðkomu hins opinbera sem fælist í lögum nr. 152/2009. Þá leiddi jafnframt af lögum og lögskýringargögnum að ákvörðun R um hvort verkefni hlyti staðfestingu þyrfti að taka mið af því að stuðningur félli innan þess ramma sem ríkisstyrkjareglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið kvæðu á um. Féllst Landsréttur á þá ályktun héraðsdóms að telja yrði ljóst að R hefði byggt synjun sína á því að eignarhald eða eignarréttur G ehf. að afurð verkefnisins væri óskýr og óljóst væri hvar áhættan af fjármögnun verkefnisins lægi og hver hvatningaráhrif þess væru. Þá vísaði Landsréttur til þess að réttilega væri lagt til grundvallar í hinum áfrýjaða dómi að G ehf. sem umsækjandi yrði að bera ábyrgð á þeim gögnum sem hann legði fram í tengslum við umsókn sína auk þess sem fyrir lægi að R hefði veitt G ehf. ítrekuð tækifæri til að skýra forsendur umsóknarinnar, þar á meðal með tilliti til þeirra atriða sem synjun R var reist á. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu R af kröfum G ehf.

...GBER-reglugerðin hafi verið innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1165/2015, sem sett hafi verið af fjármála- og efnahagsráðherra með stoð í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. janúar 2025

E-1344/2024

A (Einar Brynjarsson lögmaður) gegn Rannsóknamiðstöð Íslands (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Hafnað var kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar stefnda þar sem synjað var beiðni stefnanda um staðfestingu rannsóknar- og þróunarverkefnis á grundvelli laga nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.

...GBER-reglugerðin hafi verið innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1165/2015, sem sett hafi verið af fjármála- og efnahagsráðherra með stoð í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005...

Landsréttur birt 27. október 2023

318/2022

Íslenska ríkið (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn Algalífi Iceland ehf (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður)

A ehf. höfðaði mál gegn Í og krafðist viðurkenningar á því að sú ákvörðun Í að synja A ehf. um greiðslu kostnaðar við þjálfun starfsmanna, á tilgreindu tímabili, hefði brotið gegn réttindum A ehf. samkvæmt fjárfestingarsamningi milli A ehf. og Í. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að Í hefði vanefnt skyldur sínar samkvæmt samningnum og brotið gegn réttindum A ehf. samkvæmt honum. Var krafa A ehf. því tekin til greina.

...152/2014 og innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1165/2015 um gildistöku reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð, með stoð í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Grundvöllur ríkisaðstoðar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. apríl 2022

E-2970/2021

Algalíf Iceland ehf (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Erna Hjaltested lögmaður)

Fallist var á það með stefnanda, sem er líftæknifyrirtæki, að stefndi, íslenska ríkið, hefði vanefnt tilteknar skuldbindingar samkvæmt fjárfestingarsamningi aðila.

...152/2014 og innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1165/2015 um gildistöku reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð, með stoð í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Grundvöllur ríkisaðstoðar...