Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1160/2010"

1 dómar fundust

Landsréttur birt 7. október 2022

69/2021

A (Eggert Páll Ólason lögmaður, 4. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður, Magnús Pálmi Skúlason lögmaður, 2. prófmál)

A höfðaði mál á hendur Í til að fá ógiltan úrskurð kærunefndar útlendingamála og fellda úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja A um vegabréfsáritun til Íslands vegna fyrirhugaðrar ferðar A til Íslands og dvalar í einn mánuð sumarið 2018. Synjaði Útlendingastofnun umsókninni á þeim forsendum að A uppfyllti ekki skilyrði vegabréfsáritunar samkvæmt 20. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 32. gr. reglugerðar 1160/2010 um vegabréfsáritanir. Var áfrýjandi talin, í íslenskri þýðingu, vera „innflytjendaáhætta á Schengen-svæðinu“, eins og það var orðað í ákvörðun Útlendingastofnunar. A skaut ákvörðuninni til kærunefndar útlendingamála sem staðfesti hana með úrskurði 25. september 2018. Í rökstuðningi fyrir þeirri niðurstöðu kom meðal annars fram að hætta væri á að A myndi dveljast lengur á Schengen- svæðinu en henni væri heimilt, sbr. 8. mgr. 20. gr. laga nr. 80/2016. Með dómi héraðsdóms var Í sýknað af kröfu A. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki yrði fallist á það með A að það hafi verið andstætt lögum eða á einhvern hátt ómálefnalegt að líta til þeirra sjónarmiða sem kærunefnd útlendingamála byggði niðurstöðu sína á. Var því kröfum A hafnað og hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

...5 Fyrrnefnd reglugerð nr. 1160/2010 hefur að geyma verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af hálfu Íslands til gegnumumferðar eða fyrirhugaðrar dvalar, á einum stað eða fleiri, á yfirráðasvæði...