Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1130/2006"
3 dómar fundust
G höfðaði mál á hendur Í og krafðist miskabóta vegna ólögmætrar frelsissviptingar. G byggði kröfu sína á því að hann hefði verið sviptur frelsi án þess að hafa verið handtekinn. G var stöðvaður af lögreglunni fyrir of hraðan akstur og með útrunnið ökuskírteini og í kjölfar þess fór hann án þvingunar í lögreglubifreið á lögreglustöð. Hann var hvorki handtekinn né vistaður í fangageymslu. Heldur beið inni á skrifstofu á lögreglustöðinni þar til tekin var af honum skýrsla út af öðru máli. Í skýrslu lögreglunnar var þess ekki getið að G hefði verið handtekinn og í framburði G kom hvergi fram að lögreglan hefði gert honum grein fyrir því að hann hefði verið handtekinn. G lét ekki á það reyna að yfirgefa lögreglustöðina, en samkvæmt framburði vitna bendir ekkert til að honum hefði verið haldið þar að óvilja sínum. Samkvæmt þessu var ekki talið sannað að fullyrðing G um að hann hefði verið sviptur frelsi ætti við rök að styðjast og var Í því sýknað af bótakröfu G.
...nú reglugerð nr. 1130/2006, en þar hafi verið mælt fyrir um að brot skyldi að jafnaði rannsaka í lögregluumdæmi þar sem talið sé að það hafi verið framið. Þá...
Stefnandi krafðist miskabóta vegna ólögmætrar frelsissviptingar af hálfu lögreglu. Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda.
...nú reglugerð nr. 1130/2006, en þar hafi verið mælt fyrir um að brot skyldi að jafnaði rannsaka í lögregluumdæmi þar sem talið sé að það hafi verið framið. Þá...
X kærði úrskurð héraðsdóms um að hann skyldi sæta farbanni samkvæmt 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr. sömu laga. Talið var að ríkissaksóknari hefði haft vald til að ákveða að lögreglustjórinn á Seyðisfirði skyldi krefjast farbanns yfir X á sama tíma og forræði rannsóknarinnar færðist til lögreglustjórans á Eskifirði. Var úrskurðurinn staðfestur að öðru leyti með vísan til forsendna.
...46/2006 tekið gildi en reglugerð nr. 1130/2006 ekki verið birt í Stjórnartíðindum. Að morgni 2. janúar, þegar skrifstofa embættis ríkissaksóknara var opnuð, hafi hann leitað fyrirmæla þar um...