Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1128/2012"

1 dómar fundust

Landsréttur birt 19. nóvember 2021

537/2020

Vátryggingafélag Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður) og Bolabás sf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður, 3. prófmál) gegn A (Agnar Þór Guðmundsson lögmaður, Guðmundur Sæmundsson lögmaður, 4. prófmál)

Í málinu var deilt um hvort sjúkrakostnaður samkvæmt 1. mgr. 1. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 væri að fullu upp gerður vegna tveggja umferðarslysa sem A lenti í. Ekki var deilt um bótaskyldu V hf. og B sf. sem höfðu þegar greitt A bætur á grundvelli matsgerðar. Ágreiningur aðila laut að því hvort V hf. og B sf. bæri jafnframt að bæta A kostnað vegna heilsunudds sem hún hefði sótt á nánar tilgreindu tímabili í kjölfar slysanna. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að heimilislæknir A hefði ráðlagt henni nudd vegna einkenna hennar samhliða sjúkraþjálfun. Mati heimilislæknisins á gagnsemi slíkrar meðferðar fyrir A vegna afleiðinga umferðarslysanna hefði ekki verið hnekkt. Þá væri um að ræða meðferð sem hafi verið afmörkuð í tíma og hefði þegar verið greidd að fullu af A. Yrði að meta það bæði nauðsynlegt og eðlilegt af hennar hálfu að hafa reynt þá meðferð sem heimilislæknir hennar lagði til og stofna þannig til þess kostnaðar sem hún krefði V hf. og B sf. um í málinu. Taldi Landsréttur að skilyrðum fyrir því að hinn umdeildi kostnaður yrði bættur sem sjúkrakostnaður væri fullnægt. Engu breytti þótt kostnaðurinn hefði að hluta til fallið til eftir batahvörf. Var krafa A því tekin til greina.

...34/2012, ásamt reglugerð nr. 1128/2012 um menntun, réttindi og skyldur sjúkranuddara og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Heilsunuddarar þurfi ekki starfsleyfi frá landlækni eins og sjúkranuddarar. Heilsunudd sé...