Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1100/2006"
3 dómar fundust
I ehf. höfðaði mál á hendur Í og krafðist annars vegar skaðabóta og hins vegar endurgreiðslu oftekinna gjalda vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna ítrekaðrar hækkunar á svonefndu tollafgreiðslugjaldi farþegaflugvéla utan almenns tollafgreiðslutíma. Í málinu hélt I ehf. því fram að hækkun gjaldsins eftir tiltekið tímamark ætti sér ekki stoð í tollalögum nr. 88/2005 og að innheimta þess fæli því í sér ólögmæta gjaldtöku, en Í taldi gjaldið og ákvörðun um fjárhæð þess innan marka heimildar 1. mgr. 195. gr. sömu laga. Deildu aðilar einkum um hvernig skilgreina bæri orðin „tollafgreiðsla flugvélar“ og hvaða verkefni og kostnaðarliðir féllu þar undir. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með hliðsjón af efni 1. töluliðar 1. mgr. 195. gr. tollalaga, sbr. og 3. mgr. greinarinnar, og að gættri þeirri afmörkun sem væri að finna í lögskýringargögnum um gjaldtökuheimildina, bæri að leggja til grundvallar rúma merkingu við túlkun framangreindra orða. Í orðunum fælist því slík afgreiðsla á vélinni sjálfri, en einnig tollafgreiðsla, og tollskoðun, ef þyrfti, á áhöfn og farþegum auk meðferðar og úrvinnslu mála sem upp kæmu við þessi verkefni að því leyti sem þau væru unnin utan almenns tollafgreiðslutíma. Þá yrði einnig felld undir þessi orð sú vinna sem áætla mætti að greiningardeild þyrfti að inna af hendi við skipulagningu á mannaflaþörf og öðrum viðbúnaði við tollafgreiðsluna hverju sinni. Með hliðsjón af framangreindu var talið að forsendur gjaldskráa tollstjóra fyrir töku umrædds gjalds hefðu verið nægjanlega traustar og samrýmanlegar grundvallarreglum og sjónarmiðum um fjárhæð þjónustugjalds. Var Í því sýknað af kröfum I ehf.
...að með henni sé tollstjórum veitt heimild til að innheimta ýmis þjónustugjöld vegna þjónustu sem tollstjóri veiti, ,,en telst ekki vera hluti af almennu tolleftirliti tollstjóra.“ Reglugerð nr. 1100/2006...
Icelandair ehf gegn
íslenska ríkinu
Stefnda sýknað af fjárkröfu vegna oftekinna gjalda.
...823/2009 um breytingu á reglugerð nr. 1100/2006. Umræddar breytingar hafi haft það í för með sér að afgreiðsludögum hafi fækkað úr 364 dögum í u.þ.b. 250...
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli I ehf. á hendur íslenska ríkinu var vísað frá dómi vegna vanreifunar. I ehf. hafði í málinu uppi kröfu um skaðabætur úr hendi íslenska ríkisins vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna ítrekaðrar hækkunar á svonefndu tollafgreiðslugjaldi. Félagið hélt því fram í málinu að hækkun gjaldsins eftir tiltekið tímamark ætti sér ekki stoð í tollalögum nr. 88/2005 og að innheimta þess fæli því í sér ólögmæta skattlagningu. Talið var að málatilbúnaður I ehf. uppfyllti skilyrði 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 og var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
...823/2009 um breytingu á reglugerð nr. 1100/2006. Umræddar breytingar hafi haft það í för með sér að afgreiðsludögum fækkaði úr 364 dögum í u.þ.b. 250 daga...