Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1088/2013"
2 dómar fundust
A krafðist viðurkenningar á bótaskyldu I ohf. og bótarétti úr frjálsri ábyrgðartryggingu I ohf. hjá V hf. vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir er hann þreytti þrekpróf í starfi sínu sem slökkviliðsmaður hjá I ohf. Í dómi Landsréttar var ekki á það fallist að prófið hefði verið framkvæmt með öðrum hætti en reglur í rekstrarhandbók I ohf. gerðu ráð fyrir eða að óforsvaranlegt hefði verið að láta starfsmenn draga dúkku á hallandi gólfi í prófinu. Þá var talið ósannað að prófstjóri eða stjórnendur I ohf. hefðu búið yfir upplýsingum um bakmeiðsli A sem leitt hefðu getað til þess að óforsvaranlegt hefði verið að láta hann þreyta þrekprófið. Á hinn bóginn taldi Landsréttur ljóst að til þess að starfsmaður þreytti þrekpróf væri skilyrði að fyrir lægi læknisvottorð sem sýndi að hann væri til þess hæfur og mætti vottorðið ekki vera eldra en sex mánaða. Við framkvæmd þrekprófsins hefði verið brotið gegn þessari reglu. Miðað við lýsingar í sjúkraskýrslu um þróun mjóbaksverkja A á árinu 2015 væri ekki hægt að útiloka að ef læknisskoðun hefði farið fram í tæka tíð fyrir þrekprófið hefði komið í ljós að A væri ekki fær til þess að taka prófið. I ohf. yrði sem vinnuveitandi að bera hallann af því að A hefði verið skyldaður vegna forfalla til að taka þrekpróf að hausti án þess að ný læknisskoðun færi fram. Yrði sú vanræksla metin til sakar hjá starfsmönnum sem I ohf. bæri ábyrgð á. Var krafa A því tekin til greina.
...Í reglugerð nr. 1088/2013 er að finna reglur sem ætlað er að tryggja öryggi þeirra sem stunda reykköfun, sbr. 1. gr. reglugerðarinnar. Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar skal...
Reifun: Stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda um bætur úr ábyrgðartryggingu vegna líkamstjóns er hann hlaut við að þreyta þrekpróf.
...einnig reglugerð nr. 1088/2013 um reykköfun. Um sé að ræða aðstæður sem oft geti verið hættulegar og erfiðar. Þeir sem ekki standist prófið eigi á hættu að geta ekki...