Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1050/2006"
1 dómar fundust
Með 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1050/2006 um rannsókn og saksókn efnahagsbrota var meðferð „alvarlegra brota” gegn meðal annars 262. gr. almennra hegningarlaga og skattalögum, auk skipulagðra fjármunabrota sem tengjast atvinnurekstri, felld undir verksvið saksóknara efnahagsbrota. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 19/1991 er ákæruvald í höndum ríkissaksóknara og lögreglustjóra, þar á meðal ríkislögreglustjóra. Ákæruvaldið í máli þessu var lögum samkvæmt í höndum ríkislögreglustjóra. Heimild 4. mgr. 25. gr. laga nr. 19/1991 stendur til þess eins að saksóknari, sem skipaður er við embætti ríkislögreglustjóra, höfði og flytji mál í umboði forstöðumanns þess. Ákvæði reglugerðar nr. 1050/2006, þar sem ráðgert er að saksóknari efnahagsbrota við embætti ríkislögreglustjóra fari sjálfstætt með ákæruvald í þeim málum, sem eiga undir það, en ekki í umboði ríkislögreglustjóra, voru því talin í andstöðu við framangreind ákvæði. Ekki var að finna viðhlítandi lagastoð til að víkja á þennan hátt frá lögbundinni skipun ákæruvaldsins með reglugerð. Var niðurstaða héraðsdóms um frávísun því staðfest.
...Verður að telja að embætti saksóknara efnahagsbrota hafi verið komið á fót á grundvelli síðastefndrar heimildar dómsmálaráðherra, en um embættið gildir reglugerð nr. 1050/2006 sem tók gildi 1. janúar...