Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 4. gr. laga nr. 96/2000 — Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla

Hæstiréttur birt 1. október 2009

41/2009

Svava Liv Edgarsdóttir (Ásgeir Þór Árnason hrl) gegn Kornaxi ehf (Gestur Jónsson hrl)

S starfaði sem framkvæmdastjóri K ehf. Í málinu krafði hún félagið um laun í 6 mánaða uppsagnarfresti samkvæmt ráðningarsamningi. Byggði S á því í málinu að með því að verulegar breytingar hefðu verið gerðar á starfi hennar hefði félagið í raun einhliða rift starfssamningi hennar og framkvæmdastjórastaða hennar verið lögð niður. K ehf. hélt því hins vegar fram að S hefði látið af störfum af sjálfsdáðum og ætti því ekki rétt á launum í uppsagnarfresti. Talið var að breytingar á starfi S hefðu verið framkvæmdar með fulltingi hennar en ekki yrði séð að hún hefði mótmælt þeim sérstaklega fyrr en rétt áður en hún lét af störfum. Var K ehf. sýknað af kröfu S.