Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 17. gr. laga nr. 96/2000 — Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla
Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir endurtekin kynferðisbrot samkvæmt 1. og 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í fjölda skipta á árunum 2016 til 2020 haft samræði og önnur kynferðismök við A sem gat ekki spornað við þeim verknaði sökum andlegrar fötlunar. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa látið A hafa samræði og önnur kynferðismök við aðra menn sem hann átti í samskiptum við á nánar tilgreindri vefsíðu. Með hinum áfrýjaða dómi var X einnig sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A og syni hennar B með því að hafa látið A hafa við sig munnmök og látið B horfa á undir því yfirskini að hann ætti að læra að stunda kynlíf. Var þessi háttsemi heimfærð undir 209. gr. almennra hegningarlaga um brot gegn blygðunarsemi og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 um ósiðlegt athæfi gagnvart barni. Jafnframt var X sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi gagnvart B og kærustu hans C með því að hafa farið inn í herbergi þar sem þau voru að stunda kynlíf og færa hendi sína mjög nálægt kynfærum C, þar sem hún lá nakin í rúmi, og gefið B leiðbeiningar um hvernig hann ætti að veita henni munnmök. Var þessi háttsemi heimfærð undir 209. gr. almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga að því er varðaði B. Með dómi Landsréttar var hinn áfrýjaði dómur um sakfellingu staðfestur um þetta atriði að undanskilinni heimfærslu til refsiákvæða vegna þeirrar háttsemi X að fara inn í herbergi B og C þar sem þau voru að stunda kynlíf. Í dómi Landsréttar kom fram að sú háttsemi X hafi verið mjög meiðandi í þeirra garð og ótvírætt til þess fallin að valda B og C ótta í skilningi 199. gr. almennra hegningarlaga. Var háttsemi X sem hann var sakfelldur fyrir í þessum ákærulið því heimfærð til 199. gr. almennra hegningarlaga um kynferðislega áreitni. Refsing X var ákveðin fangelsi í níu ár og honum gert að greiða A, B og C miskabætur.