Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 15. gr. laga nr. 96/1997 — Lög um slátrun og sláturafurðir
S hf. krafðist endurgreiðslu á svonefndu yfirmatsgjaldi sem innheimt var á grundvelli 2. mgr. 16. gr. laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir. Byggði S hf. á því að gjaldið væri ólögmætt enda hefði félagið ekki þegið þjónustu í formi yfirmats sem gjaldið tók til. Af hálfu íslenska ríkisins var á hinn bóginn á því byggt að gjaldið væri í reynd sérstakur skattur sem lagður væri á sláturleyfishafa með gildri lagaheimild til skattlagningar, sbr. 40., sbr. 77. gr. stjórnarskrár. Í dómi Landsréttar var litið til þess að umrætt gjald hefði verið sett samkvæmt fastákveðnu viðmiði án þess að ráðherra eða öðrum stjórnvöldum hefði verið falið mat eða framselt vald til að ákveða fjárhæð gjaldsins, nánari viðmið fyrir álagningu þess eða endurgreiðslur. Gæti það ekki haggað greiðsluskyldu sláturleyfishafa að gjaldinu var ætla að standa straum af kostnaði við yfirmat og að slíkt yfirmat færi mismikið eða jafnvel alls ekki fram. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu íslenska ríkisins.
Stefndi var sýknaður af dómkröfum stefnanda sem byggðu á ólögmætri töku þjónustugjalda vegna svokallaðs yfirmats sem sannarlega fór ekki fram hjá stefnanda. Komst dómurinn hins vegar að þeirri niðurstöðu að fallast bæri á með stefnda að umrætt gjald í 2. mgr. 16. gr. laga nr. 96/1997 væri í reynd gild skattlagningarheimild og að skattheimtan hjá stefnanda hefði verið til samræmis við hana.