Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 78. gr. laga nr. 94/2001 — Lög um opinber innkaup
Hýsir ehf (Jakob A. Traustason fyrirsvarsmaður) gegn
íslenska ríkinu (
Björn Jóhannesson lögmaður)
H ehf. krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna ákvarðana Ríkiskaupa og úrskurða kærunefndar útboðsmála í tengslum við nánar tilgreind útboð vegna lyfjakaupa. Hafði kröfum H ehf. á hendur Í vegna sömu atvika þrívegis verið vísað frá dómi. Með hinum áfrýjaða dómi var Í sýknað af nánar tilgreindum kröfum en fallist á eina kröfu H ehf. Þá var einni kröfu hans vísað frá héraðsdómi. Í dómi Landsréttar kom fram að H ehf. hefði ekki borið niðurstöðu um frávísun þeirrar kröfu frá héraðsdómi undir Landsrétt með kæru eftir reglum XXIV. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. c-lið 2. mgr. 143. gr. og 1. mgr. 144. gr. þeirra laga, líkt og honum hefði borið að gera vildi hann ekki una henni. Þessi hluti héraðsdóms gat því ekki sætt endurskoðun Landsréttar og var kröfunni því vísað án kröfu frá Landsrétti. Að öðru leyti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að málatilbúnaður H ehf. væri haldinn slíkum annmörkum að óhjákvæmilegt væri að vísa kröfum hans frá héraðsdómi.
A (B fyrirsvarsmaður) gegn
íslenska ríkinu
Stefnandi, félag sem hugðist flytja inn lyf, höfðaði í fjórða sinn mál á hendur íslenska ríkinu til viðurkenningar á rétti sínum til skaðabóta úr hendi stefnda vegna tjóns sem stefnandi taldi Ríkiskaup og kærunefnd útboðsmála hafa valdið sér með aðgerðum og aðgerðaleysi við útboð á lyfjum sem fóru fram á árunum 2002 og 2003. Viðurkenndur var réttur stefnanda til bóta sem samsvöruðu kostnaði hans af því að taka þátt í útboðunum. Stefndi var sýknaður af viðurkenningarkröfu um aðrar skaðabætur og kröfu um endurgreiðslu kostnaðar sem stefnandi hafði verið dæmdur til þess að greiða stefnda í fyrri málum. Kröfu stefnanda um viðurkenningu vaxta var vísað frá dómi.