Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 13. gr. laga nr. 93/1992 — Lög um meðferð sjávarafurða og eftirlit með framleiðslu þeirra

Hæstiréttur birt 4. mars 1999

275/1998

Þrotabú Í Nausti ehf (Bjarni Þór Óskarsson hdl) gegn Fiskistofu og íslenska ríkinu til réttargæslu

Fiskvinnslufyrirtækið N stefndi Fiskistofu til ógildingar á ákvörðun stofnunarinnar um að leggja gjald á það samkvæmt heimild í lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Forsendur álagningarinnar voru þær, að innveginn þorskafli til verkunar þótti ekki nægilega mikill til að standa undir magni þeirra saltfiskafurða sem fyrirtækið seldi. Fullyrðingar forsvarsmanns N um að nýtingarhlutfall í framleiðslu fyrirtækisins væri mun hærra en almennt gerðist í atvinnugreininni þóttu ekki nægilega rökstuddar. Var talið sannað að hluti þess afla sem fyrirtækið hafði verkað, væri ólögmætur í skilningi laganna. Þótti magn aflans varlega áætlað og álagningu gjaldsins í hóf stillt. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu staðfest með vísan til forsendna hans.