Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (flutningur fjármuna, VRA-vottun). nr. 9/2019

Landsréttur birt 11. september 2020

165/2020

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Heinz Bernhard Sommer (Björgvin Jónsson lögmaður, Þorgils Þorgilsson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

H var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ásamt öðrum manni staðið að innflutningi á samtals 37.755,28 g af amfetamíni og 4.965,28 g af kókaíni, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru flutt frá Þýskalandi falin í bifreið sem ekið var til Danmerkur og þaðan með farþegaferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar, þar sem þau fundust við leit. Við ákvörðun refsingar var litið til 3. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og tekið tillit til styrkleika efnanna. Var H gert að sæta fangelsi í sjö ár en til frádráttar kom gæsluvarðhald sem hann sætti. Þá voru fíkniefnin og bifreiðin, sem notuð var við innflutninginn, gerð upptæk.