Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. nr. 88/2000

Hæstiréttur birt 17. september 2015

18/2015

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn X (Björgvin Þorsteinsson hrl) (Páll Arnór Pálsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Kærumál. Afhending gagna. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms, þar sem vísað var frá dómi máli á hendur A, meðal annars með skírskotun til þess að krafa sóknaraðila hafi verið nægjanlega skýr og afmörkuð til þess að héraðsdómara hafi verið unnt að taka afstöðu til hennar.

Hæstiréttur birt 29. janúar 2015

336/2014

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Gunnari Friðbergi Jóhannssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl, Jóna Björk Helgadóttir hdl) (Páll Arnór Pálsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

G var sakfelldur fyrir kynferðisbrot, sem talin voru varða við 199. gr., 2. mgr. 202. gr. og 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og brot gegn barnaverndarlögum gagnvart fimm stúlkum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að G hefði ekki áður sætt refsingu, en jafnframt haft í huga að brot hans beindust að stúlkum á viðkvæmum unglingsaldri sem hann hafði afskipti af í félags- og ungmennastarfi. Með því hefði G brugðist trúnaðartrausti þeirra. Var refsing G ákveðin fangelsi í níu mánuði. Að virtum drætti á rannsókn málsins og meðferð þess í héraði svo og undir áfrýjun málsins var fullnustu refsingarinnar frestað og félli hún niður að liðnum tveimur árum héldi G almennt skilorð samkvæmt 57. gr. almennra hegningarlaga. Þá var G gert að greiða brotaþolum skaðabætur, að fjárhæð 250.000 krónur til fjögurra þeirra en 150.000 krónur til þess fimmta.