Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 21. gr. laga nr. 88/1997 — Lög um fjárreiður ríkisins
Félagsmálaráðherra gerði 8. maí 2004 þjónustusamning til 31. desember 2008 við sjálfseignarstofnunina S, þar sem ráðuneytið skuldbatt sig meðal annars til að leggja til að tiltekin fjárhæð yrði veitt til starfsemi S með fjárlögum hvers árs. Með fjárlögum ársins 2009 var fjárhæð til handa S skert um 4% frá því sem aðilar höfðu samið um. S höfðaði mál á hendur Í og krafðist aðallega viðurkenningar þess að skerðingin hefði verið óheimil, þar sem hún bryti gegn 65. gr. og 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, en til vara að viðurkennt yrði að Í hefði með skerðingunni vanefnt skuldbindingar sínar að samningnum. Í dómi Hæstaréttar var talið að Alþingi hefði haft vald til að ákveða fjárveitingu til S og að S gæti ekki byggt rétt til frekari fjárveitingar á útrunnum samningi. Var Í því sýknað af kröfum S.
Fallist var á kröfu stefnanda, Sólheima sjálfseignarstofnunar, um viðurkenningu á því að stefndi, íslenska ríkið, hefði vanefnt samningsskuldbindingar sínar samkvæmt þjónustusamningi stefnanda við félagsmálaráðuneytið með því að skerða fjárframlag til stefnanda um 4% með fjárlögum ársins 2009.