Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 18. gr. laga nr. 86/1998 — Lög um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra
B starfaði samkvæmt tímabundnum ráðningarsamningi sem framhaldsskólakennari við framhaldsskólann MK skólaárið 2000-2001. Hafði hann leitað án árangurs eftir fastráðningu í kennarastöðu á árinu 2000 vegna skólaársins 2000-2001. Í apríl 2001 knúði hann á um fastráðningu fyrir næsta skólaár og ítrekaði erindi sitt í júní sama árs. Skólameistari MK neitaði og gaf B frest til loka mánaðarins til að undirrita tímabundinn ráðningarsamning til eins árs. Kom B á skrifstofu skólans 20. júní að skólameistara fjarstöddum og undirritaði tímabundinn ráðningarsamning, en bætti við fyrir neðan megintexta hans: „Með fyrirvara um niðurstöðu fastráðningarmáls“. Í framhaldi af þessu tilkynnti skólameistari fjármálaráðuneytinu að B yrði ekki við störf í skólanum næsta skólaár. Talið var að skólameistara hafi verið rétt að líta svo á að með áritun sinni á samninginn hafi B hafnað boði um tímabundinn ráðningarsamning og jafnframt gert nýtt tilboð um samning með öðru efni. Vegna þessa hafi bindandi ráðningarsamningur ekki komist á með undirritun B. Þá var ekki talið sannað að hann hafi fyrir lok tilskilins frests samþykkt munnlega að ganga að tímabundum ráðningarsamingi. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfu hans.