Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 15. gr. laga nr. 86/1998 — Lög um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra
K, sem hafði verið lausráðinn kennari við F í sjö ár, fékk ekki starf við F þegar hann sótti um. K hafði leyfi til að nota starfsheitið framhaldsskólakennari, en í starfið var ráðinn réttindalaus kennari. Taldi K að brotið hefði verið á sér og krafðist skaða- og miskabóta. Talið var að leyfi K hafi veitt honum forgang í starfið umfram umsækjanda sem hafði ekki slíkt leyfi. Var K því talinn eiga rétt á bótum vegna hugsanlegs tjóns. Ekki voru þó taldar forsendur til að ákvarða K bætur vegna fjártjóns þar sem ekki voru lögð fram gögn sem gætu skotið stoðum undir ákvörðun bóta. K var hins vegar talinn eiga rétt til miskabóta þar sem vegið hafði verið að starfsheiðri hans.
Kennara voru dæmdar bætur vegna þess að ráðinn var réttindalaus kennari þrátt fyrir að kennarinn hefði sótt um starf.