Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 8. mgr. 37. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup
E ehf. hlaut fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu hjúkrunarheimilis. Kærunefnd útboðsmála komst að þeirri niðurstöðu að E ehf. hefði ekki átt rétt til þátttöku í samkeppninni vegna viðskiptatengsla fyrirtækis eins dómnefndarmanns við E ehf. sem talið var valda vanhæfi hans. Var E ehf. svipt verðlaununum í kjölfar niðurstöðu kærunefndarinnar. Í málinu krafðist E ehf. þess að ákvörðunin yrði felld úr gildi, meðal annars vegna þess að F hafi skort vald til að svipta sig verðlaunasæti. Slík ákvörðun yrði aðeins tekin af dómnefnd þeirri er um tillögurnar hafði fjallað. Héraðsdómur felldi ákvörðun F úr gildi með vísan til þess að hún hafi ekki verið bær til svipta E ehf. verðlaunasæti. Þá taldi héraðsdómur dómnefndarmanninn ekki hafa verið vanhæfan til starfans og E ehf. hafi því átt þátttökurétt í samkeppninni. Var fallist á skaðabótaskyldu Í gagnvart E ehf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ekki yrði talið að F hafi farið út fyrir valdsvið sitt þegar hún ákvað fyrir hönd verkkaupa og í krafti stöðu sinnar samkvæmt lögum nr. 84/2001 um skipan opinberra framkvæmda að svipta E ehf. verðlaununum. Staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hans.
Felld var úr gildi ákvörðun um að svipta aðalstefnanda fyrstu verðlaunum í hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð. Enn fremur var fallist á kröfu aðalstefnanda um viðurkenningu á skaðabótaskyldu stefnda, íslenska ríkisins, í tilefni af því að ákveðið var að semja við annan keppanda um áframhaldandi hönnun hjúkrunarheimilisins. Aðalstefnandi var sýknaður af kröfu gagnstefnanda um endurgreiðslu á verðlaunafénu. Þá voru kröfur aðalstefnanda á hendur tveimur stefndu vísað frá dómi þar sem þeir hefðu ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins.