Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 7. mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003 — Lög um fjarskipti

Hæstiréttur birt 27. ágúst 2012

562/2012

Lögreglustjórinn á Selfossi (Margrét Harpa Garðarsdóttir) gegn Símanum hf (Andri Árnason hrl)

L krafðist þess að S hf. yrði gert að afhenda upplýsingar um „inn- og úthringingar um fjarskiptamöstur sem nást inn í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum“ á nánar tilteknu tímabili. Í dómi Hæstaréttar kom fram að heimild til að afla gagna samkvæmt 80. gr. laga nr. 88/2008 væri íþyngjandi rannsóknarúrræði sem fæli í sér undantekningarreglu frá 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar og af þeim sökum yrði ákvæðið ekki skýrt rýmra en leiðir af texta þess. Skilyrði til að afla umræddra gagna væri að rökstuddur grunur væri fyrir hendi um að tiltekinn sími eða fjarskiptatæki hefði verið notað í tengslum við refsivert brot og væri það skilyrði samhljóða eldra ákvæði laga nr. 19/1991. Í því máli sem hér var til meðferðar beindist krafa lögreglu ekki að tilteknum síma eða fjarskiptatæki, heldur að því að veittar yrðu allar upplýsingar um alla farsíma sem hringt var úr eða í um fjarskiptamöstrin á tilgreindum tíma. Þar sem krafa lögreglustjóra gekk lengra en rúmaðist innan orðalags 80. gr. laga nr. 88/2008 var henni hafnað.