Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 5. mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003 — Lög um fjarskipti

Hæstiréttur birt 23. mars 2011

139/2011

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn C (Brynjólfur Eyvindsson hdl)

C kærði úrskurð héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu L um að A ehf. væri skylt að veita L upplýsingar um öll fjarskipti C á tilteknu tímabili við eftirfarar- og staðsetningarbúnað sem C hafði leigt af A ehf. og hversu oft C tengdist búnaðinum í tölvu sinni og sótti upplýsingar frá búnaðinum. L hafði til rannsóknar ætluð brot C á 5. mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti. Í dómi Hæstaréttar kemur m.a. fram að það hafi verið meginregla samkvæmt lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að ekki væri gert ráð fyrir því að sakborningi væri gefinn kostur á að láta mál til sín taka á meðan það væri til rannsóknar. Hefði þessi regla ekki verið talin fara í bága við stjórnarskrá né mannréttindasáttmála Evrópu. Þessari meginreglu hefði ekki verið breytt með lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var C ekki talið heimilt að kæra úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar þar sem hann hefði ekki með réttu átt aðild að málinu í héraði. Var málinu því vísað frá Hæstarétti.