Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 6. gr. laga nr. 81/1976 — Lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Fiskiskipið F var staðið að línuveiðum inni í hólfi, sem lokað var fyrir línuveiðum samkvæmt reglugerð. Leitt var í ljós að V, skipstjóri F, hafði gefið fyrirmæli um að leggja línuna á þessum stað, þar sem hann hafði fengið í hendur kort af svæðinu, sem hann taldi að sýndi réttar útlínur hólfsins, en reyndist ekki gera það. Var V dæmdur til lágmarkssektar, sem kveðið var á um í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, auk þess sem verðmæti afla og veiðarfæra voru gerð upptæk. Ekki var talið að máli skipti hvort reglugerð, sem bannaði veiðar í hólfinu, hefði haft lagastoð þegar hún var sett, þar sem hún fengi nú stoð af fyrrnefndum lögum.