Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 6. mgr. 6. gr. laga nr. 8/1986 — Sveitarstjórnarlög

Hæstiréttur birt 14. október 1999

168/1999

Íslenska ríkið (Skúli Bjarnason hrl) gegn Sveitarfélaginu Árborg (Othar Örn Petersen hrl)
Lykilorð: Ábyrgð. Sveitarstjórn.

Árið 1983 samþykkti hreppsnefnd sveitarfélagsins E, að takast á hendur sjálfsskuldarábyrgð á láni hlutafélagsins H hjá ríkissjóði, en þá voru í gildi sveitarstjórnarlög nr. 58/1961. Í byrjun árs 1987, eftir að sveitarstjórnarlög nr. 8/1986 höfðu tekið gildi, samþykkti hreppsnefndin fyrir sitt leyti skilmálabreytingu lánsins. Talið var, að sjálfskuldarábyrgð E hefði ekki öðlast gildi, þar sem ákvörðun hreppsnefndarinnar 1983 hefði ekki verið lögð fyrir sýslunefnd til samþykkis samkvæmt 3. tölulið f. liðar 11. gr. laga nr. 58/1961. Ábyrgðaryfirlýsing E við skilmálabreytinguna 1987 hefði orðið að fullnægja ákvæðum 89. gr. laga nr. 8/1986. Samkvæmt 4. mgr. greinarinnar væri sjálfskuldarábyrgð sveitarfélags við þessar aðstæður ekki heimil. Þá fullnægði yfirlýsingin ekki heldur skilyrðum 5. mgr. 89. gr. laganna um veitingu einfaldrar ábyrgðar, en engar líkur voru að því leiddar að ábyrgð E hefði verið veitt gegn tryggingu sem metin var gild. Var því hafnað kröfu ríkisins um staðfestingu sjálfskuldarábyrgðar sveitarfélagsins Á, sem tekið hafði við réttindum og skyldum E.