Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 37. gr. laga nr. 8/1986 — Sveitarstjórnarlög
Deilt var um gildi sveitarstjórnarkosninga í Borgarbyggð. Í kjölfar kæru F hafði félagsmálaráðuneytið komist að þeirri niðurstöðu að ógilda bæri kosningarnar. Með vísan til þess að ráðuneytið hefði farið út fyrir valdmörk sín með því að ógilda kosningarnar þótt slík krafa hefði ekki verið höfð uppi felldi héraðsdómur úrskurðinn úr gildi. Hæstiréttur komst að annarri niðurstöðu. Talið var að orðalag 2. mgr. 93. gr. laga nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna um „kæruefnið“ setti því nokkrar skorður hvernig kosningakærur yrðu að vera úr garði gerðar. Yrði sá skilningur þó ekki í það lagður að úrskurðaraðili væri með öllu bundinn við orðalag kæru og hefði ekkert svigrúm til að leggja sjálfstætt mat á kjörgögn og framvindu kosninga í samræmi við eftirlitshlutverk sitt og almennar stjórnsýslureglur í því skyni að kanna hvort galli væri á kosningu svo að ógildingu gæti varðað, sbr. 94. gr. laganna. Meðferð á kosningakærum væri opinbers réttar eðlis þar sem brýnir almannahagsmunir væru í húfi og lyti hún ekki að öllu leyti málsforræðisreglum einkamálaréttar. Við meðferð félagsmálaráðuneytisins á kæru F hefði blasað við að utankjörfundaratkvæði með sams konar ágalla hefðu ekki fengið sömu meðferð við talningu atkvæða í Borgarbyggð og hefði það legið ljóst fyrir frá upphafi án þess að til nokkurra viðbragða kæmi af hendi þeirra sem um framkvæmd kosninganna fjölluðu í héraði. Hefði ráðuneytinu því bæði verið rétt og skylt að láta það til sín taka og stóð kröfugerð F því ekki í vegi. Fyrir lá að niðurstaða talningar hafði orðið sú að jafn mörg atkvæði voru að baki fjórða manni á B-lista og öðrum manni á L-lista. Utankjörfundaratkvæði sem meta hefði átt ógilt en var ranglega sett í kjörkassa gat beinlínis haft áhrif á úrslit kosninganna og hlaut þessi ágalli að leiða til ógildingar þeirra samkvæmt skýru ákvæði í 94. gr. laga nr. 5/1998. Niðurstöðu félagsmálaráðuneytisins um ógildingu sveitarstjórnarkosninganna varð því ekki haggað.