Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 7. gr. laga nr. 79/2008 — Lög um endurskoðendur

Landsréttur birt 18. júní 2021

144/2020

Dverghamrar ehf (Hildur Sólveig Pétursdóttir lögmaður) gegn Kópavogsbæ (Guðjón Ármannsson lögmaður)

D ehf. höfðaði mál á hendur K og krafðist skaðabóta vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að K hefði með saknæmum og ólögmætum hætti hafnað umsókn D ehf. um byggingarrétt á lóðinni Á 4-8. K auglýsti úthlutun byggingarréttar á nánar tilgreindum lóðum árið 2015. D ehf. var meðal umsækjenda og samþykkti bæjarráð K að vísa umsókn félagsins til bæjarstjórnar til samþykktar fyrir lóðina Á 4-8 í samræmi við tillögu vinnuhóps um úthlutun byggingarréttar. Á fundi bæjar- stjórnar var ákveðið að fresta afgreiðslu umsóknarinnar og vísa erindinu aftur til bæjarráðs. Sama dag var umsókn D ehf. tekin fyrir hjá fyrrgreindum vinnuhópi sem bókaði að framlagður ársreikningur D ehf. hefði ekki uppfyllt skilyrði úthlutunar- reglna um áritun löggilts endurskoðanda. Í kjölfarið samþykkti bæjarráð, í samræmi við tillögu vinnuhópsins, að öðru félagi yrði gefinn kostur á byggingarrétti á lóðinni Á 4-8 enda þótti ekki rétt að heimila D ehf., umfram aðra, að leggja fram ný gögn að liðnum umsóknarfresti. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að krafa úthlutunar- reglnanna um að framlagðir ársreikningar væru áritaðir af löggiltum endurskoðanda væri málefnaleg og að D ehf. hefði ekki leitt í ljós að það hefði verið venjuhelguð eða alkunn framkvæmd að K tæki við óárituðum ársreikningum þvert á reglurnar. Þá hefði D ehf. ekki átt kröfu um að skila árituðum ársreikningi eftir lok umsóknarfrests enda hefði það verið til þess fallið að raska jafnræði umsækjenda. Loks var því hafnað að upphafleg ákvörðun bæjarráðs hefði verið fullnaðarákvörðun sem óheimilt hefði verið að hverfa frá. D ehf. hefði því ekki tekist sönnun um að umsókn hans hefði uppfyllt kröfur úthlutunarreglnanna eða að stjórnsýsluframkvæmd eða aðrar ákvarðanir K hefðu leitt til skaðabótaskyldu K. Var K því sýknað af kröfum D ehf.