Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 31. gr. laga nr. 77/2000 — Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
Stefndi, Persónuvernd, var sýknaður af aðal- og varakröfu stefnanda, Embætti landlæknis, um ógildingu ákvörðunar, er laut að því að stefnandi tryggði ekki nægilega öryggi persónuupplýsinga og var gerð stjórnvaldssekt. Var þó fallist á þrautavarakröfu stefnanda um lækkun sektarinnar.
Kröfu stefnanda um að ákvörðun stjórnar Persónuverndar um heimild Seðlabankans til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits yrði dæmd ólögmæt vísað frá dómi. Ekki var talið að stefnandi hefði sýnt fram á einstaklega, beina og lögvarða hagsmuni af úrlausn dómkröfunnar, eins og hún væri fram sett.