Í ársbyrjun 1993 var ákveðið á hluthafafundi S hf. að hækka og síðan lækka aftur hlutafé í félaginu. Í kjölfarið ákvað stjórn félagsins að lækkunarfjárhæðin yrði greidd hluthöfum, sem allir tengdust fjölskylduböndum, með útgáfu skuldabréfa, sem voru vaxta- og afborgunarlaus til 12 ára. S hf. gjaldfærði síðan árleg afföll af skuldabréfunum í rekstrarreikningum félagsins auk þess sem þau voru skuldfærð í ársreikningum félagsins. Með úrskurði skattstjórans í Reykjavík 18. desember 2001 voru gjaldfærslur affallanna felldar niður gjaldaárin 1996 til 2000 og tekjuskattstofnar félagsins hækkaðir í samræmi við það auk þess sem bætt var við 25% álagi á hækkunina. Niðurstaða skattstjórans var staðfest með úrskurði yfirskattanefndar 24. september 2003 og krafðist S hf. ógildingar á þeim úrskurði. Á það var fallist með Í að skattskil S hf. hefðu verið þannig úr garði gerð að þau tímamörk, sem fram koma í 1. mgr. 97. gr. laga nr. 75/1981 um tekju og eignarskatt, hefðu átt við. Þá var talið að hnökri á málsmeðferð skattstjóra, sem fólst í því að kveða upp tvo úrskurði vegna gjaldársins 1996, hafi ekki átt að leiða til ógildingar á úrskurðinum. Önnur atriði, sem S hf. taldi fela í sér annmarka á meðferð málsins á stjórnsýslustigi, voru einnig talin haldlaus. Á það var fallist með Í að afföll af skuldabréfunum hefðu ekki getað talist til kostnaðar við að afla eða ávaxta fé í rekstri félagsins, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 75/1981, heldur hafi verið um að ræða útgjöld, sem leiddu af því að losa fé til hluthafanna. Afföllin hefðu því fallið utan við heimild ákvæðisins til að draga kostnað frá tekjum af rekstri. Þá var talið að sú ráðstöfun að greiða lækkun hlutafjárins með þeim hætti sem gert var hefði verið verulega frábrugðin því sem almennt gerðist í slíkum skiptum og ekki væri ástæða til að ætla að til þeirra hefði komið milli óskyldra aðila. Yrði að telja ljóst að tilgangurinn með þeirri ráðstöfun hafi fyrst og fremst verið skattalegur ávinningur. Því var talið að skattstjóra hefði verið heimilt að skerast í leikinn á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981 og lækka gjaldfærðan rekstrarkostnað félagsins á þann hátt sem hann gerði. Þá var hafnað kröfum S hf. um niðurfellingu álags. Var Í því sýknað af kröfum S hf.
X var sakfelldur fyrir brot á 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brotaþoli var aðeins 16 ára þegar X, sem hún þekkti ekkert, framdi brotið. Brotið var talið gróft og hafði í för með sér talsverða líkamlega áverka. Miðað við eðli og alvarleika brotsins þótti refsing X hæfilega ákveðin 2 ára fangelsi.
Krafa T á hendur L vegna ógreiddra opinberra gjalda hans frá gjaldárunum 1993 og 1994 var fyrnd þegar leitað var eftir því að gert yrði fjárnám fyrir kröfunni á árinu 2002. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að krafan hafi fallið í gjalddaga tíu dögum eftir að ríkisskattstjóri endurákvarðaði opinber gjöld L á árinu 1997, sbr. 6. mgr. 110. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt, en ekki þegar hann leysti úr kæru L af þessu tilefni á árinu 1998, enda hafi sá úrskurður eingöngu haft í för með sér lækkun á opinberum gjöldum L.
G ehf. færði til gjalda um það bil 15 milljónir króna í rekstrarreikningum sínum árin 1994 og 1995 vegna kaupa á lögfræðiþjónustu af H ehf., sem lögmennirnir G og J veittu viðskiptavinum G ehf. en þáðu greiðslur fyrir frá H ehf. Á þeim tíma, sem málið varðaði, var G eigandi að 99% hlut í báðum félögunum. Athugun skattstjóra á bókhaldsgögnum H ehf. leiddi í ljós að kostnaður félagsins vegna þjónustu, sem það keypti af G, og launa og launatengdra gjalda, sem það greiddi vegna hans og J, nam samtals 185.000 krónum árið 1994 og 3.799.148 krónum árið 1995. Fyrir álagningu opinberra gjalda gjaldárið 1995 námu eftirstöðvar ónotaðs rekstrartaps H ehf. frá fyrri árum tæplega 19 milljónum króna. Kom því ekki til álagningar tekjuskatts á félagið á árunum 1995 og 1996 vegna tekna þess af þeirri þjónustu, sem var seld G ehf. Í dómi Hæstaréttar segir að eins og atvikum sé háttað verði að ganga út frá því, líkt og gert hafi verið af hálfu skattyfirvalda, að viðskipti félaganna hafi fyrst og fremst komið til vegna þeirra hagsmuna, sem aðaleigandi þeirra hafði af því hjá hvoru félaginu tekjur G ehf. af seldri þjónustu kæmu til skattlagningar. Þá yrði að teljast ljóst að ákvörðun um að greiða þeim G og J fyrir þjónustu, sem var veitt viðskiptavinum G ehf., af reikningi H ehf., hafi fyrst og fremst haft það markmið að mynda viðskipti á milli félaganna með það fyrir augum að nýta rekstrartap H ehf. á móti tekjum G ehf., enda muni viðskiptunum að mestu hafa lokið þegar ónotaða rekstrartapið var upp urið. Séu ekki efni til að draga í efa að áðurnefnd stjórnunar- og eignatengsl milli félaganna hafi þar ráðið úrslitum. Í ljósi alls þessa hafi skipti félaganna verið verulega frábrugðin því, sem almennt gerist í slíkum viðskiptum, og engin ástæða til að ætla að til þeirra hefði komið milli óskyldra aðila. Hafi skattstjóra því verið rétt að lækka gjaldfærðan rekstrarkostnað G ehf. um þær fjárhæðir, sem voru mismunur á því gjaldi, sem félagið innti af hendi til H ehf., og þeim greiðslum, sem runnu frá síðarnefnda félaginu til G og J, sbr. þá meginreglu, sem búi að baki 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981.
Málsaðilar deildu um lögmæti þeirrar ákvörðunar skattyfirvalda að færa Þ til tekna í skattframtali 1999 sem starfstengdar tekjur 153.750 krónur vegna kaupa hennar haustið 1998 á hlutabréfum í Landsbanka Íslands hf. á sérstökum starfsmannakjörum á genginu 1,25, en fjárhæðin nam mismuninum á verði bréfanna á því gengi og á genginu 1,9 sem almenningi bauðst á sama tíma. Varð ekki annað ráðið af gögnum málsins en að Þ hefðu boðist umrædd kjör vegna starfa hennar í þágu bankans. Þá þótti tvímælalaust að þau hlunnindi sem fólust í hinum sérstöku starfsmannakjörum yrðu metin til peningaverðs svo sem áskilið er í 1. mgr. 7. gr. laga um tekju- og eignarskatt. Var því talið að um skattskyld hlunnindi hafi verið að ræða sem réttilega hafi átt að færa sem tekjur hjá Þ samkvæmt 7. gr. laganna. Þótti 2. mgr. 58. gr. sömu laga, sem fjallar um óvenjuleg skipti í fjármálum, ekki breyta þeirri niðurstöðu. Þá var tekið fram að enda þótt skattyfirvöld hafi ítrekað lýst afstöðu sinni til skattlagningarinnar hafi Þ sannanlega verið veittur andmælaréttur að lögum áður en endanleg ákvörðun var um hana tekin og þótti ekkert benda til að andmælaréttur hafi aðeins verið til málamynda, líkt og Þ hafði haldið fram. Var kröfu Þ um ógildingu úrskurðar yfirskattanefndar því hafnað.