Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 50. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt
Í málinu kröfðust Ó og H ógildingar á tilteknum úrskurðum skattstjóra og ríkisskattstjóra þar sem gjaldfærðar fyrningar samkvæmt rekstrarskýrslum þeirra árin 2003 til 2008 voru lækkaðar, annars vegar með vísan til þess að þeim hefði verið óheimilt að hækka bókfært verð eigna í atvinnurekstri sínum með tilliti til matsverðs eignanna á hverju ári og hins vegar með vísan til þess að þeim hefði verið óheimilt að fyrna stofnkostnað vegna kaupa á aflahlutdeild. Þá laut ógildingarkrafa Ó og H að þeirri ákvörðun ríkisskattstjóra að hafna gjaldfærslu að tiltekinni fjárhæð vegna skerðingar á úthlutuðu aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2007 til 2008. Í héraðsdómi sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna kom fram að ekki hefði verið að finna heimild í lögum til að miða fyrningargrunn umræddra eigna við matsverð þeirra. Hefði úrskurður skattstjóra um endurákvörðun gjalda Ó og H til samræmis við stofnverð þeirra samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt því verið í samræmi við lög. Þá væri samkvæmt ótvíræðum fyrirmælum 1. mgr. 48. gr. sömu laga óheimilt að fyrna stofnkostnað við kaup á varanlegri aflahlutdeild. Árleg ákvörðun á aflamarki Ó og H hefði ekki falið í sér skerðingu á aflahlutdeild þeirra. Þá yrði ekki á það fallist að téð réttindi hefðu fallið niður eða verið skert í skilningi lokaorða 3. mgr. 48. gr. laganna. Samkvæmt framangreindu hefðu úrskurðir skattyfirvalda sem deilt væri um í málinu verið í samræmi við skýr og ótvíræð fyrirmæli laga.
Kröfu Ó og H um að felldir úr úr gildi úrskurðir skattyfirvalda, þar sem skattstofn þeirra var endurákvarðaður, var hafnað.